139. löggjafarþing — 162. fundur,  13. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[22:59]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í dag er það svo að til að breyta þessum málaflokkum, flutningi milli ráðuneyta og skipan ráðuneyta, þarf frumvarp fyrir Alþingi sem fer í gegnum þrjár umræður, það sent út til umsagnar o.s.frv. Núna síðustu tvö ár eða frá síðustu kosningum höfum við séð að Alþingi hefur fjallað um breytingar af þessum toga og m.a. gert breytingar á frumvarpi sem komið hefur frá ríkisstjórninni og hæstv. forsætisráðherra. Dæmi um það er þegar frumvarp kom frá hæstv. forsætisráðherra sem fól það í sér að til yrði atvinnuvegaráðuneyti þar sem sameinuð yrðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið annars vegar og iðnaðarráðuneytið hins vegar. Alþingi, löggjafinn, tók það út úr því frumvarpi og sýndi þar með vilja til þess að hafa áhrif á skipan mála, áhrif á það með hvaða hætti þeim málaflokki væri ráðstafað. (Gripið fram í.) Það sýnir að Alþingi hefur fullan vilja til þess að svo sé. Það hefur verið gagnrýnt að gera breytingar á því með þessum hætti og það hefur m.a. komið fram hjá hv. þm. Atla Gíslasyni, formanni þingmannanefndarinnar, við 1. umr. málsins þar sem hann fjallaði um (Gripið fram í.) það.

Hvað finnst hv. þingmanni? Í ljósi þess að þessu hefur verið beitt í tvö ár, er þá ekki nokkuð sýnilegt að Alþingi og þeir þingmenn sem hér sitja vilja með beinum hætti hafa áhrif á það hvernig þessum málum er háttað? Mátti ekki telja nokkuð einsýnt að þegar þetta frumvarp kom fram mundi koma andstaða við það einmitt í þessu ljósi?