139. löggjafarþing — 162. fundur,  13. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[23:50]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Ég tel að í grundvallarmáli sem þessu sé nauðsynlegt að ná víðtækri sátt á milli stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka um svona breytingar, grundvallarbreytingar á Stjórnarráðinu.

Í öðru lagi vil ég nefna að menn tala um að þetta sé málefni sem ríkisstjórnin beri fram. Það er ljóst að það er bullandi ágreiningur í ríkisstjórninni um þetta mál, þar er hver höndin upp á móti annarri og við höfum því miður ekki enn tölu á því hversu margir ráðherrar Vinstri grænna muni greiða atkvæði gegn þessu máli. Það er því ekki hægt að segja að hér sé um afkvæmi ríkisstjórnarinnar að ræða heldur hæstv. forsætisráðherra.

Ég vil segja það enn og aftur og mótmæla því að verði þetta samþykkt er verið að auka vald einnar manneskju, hæstv. forsætisráðherra, til að gera grundvallarbreytingar á Stjórnarráðinu. Og út af athugasemdum hv. þm. Róberts Marshalls vil ég segja þetta: Ef við getum lært eitthvað af (Forseti hringir.) hruninu þá er það það að við þurfum að fara að beita gagnrýnni hugsun í umræðum (Forseti hringir.) í þinginu og ég tel að þessi umræða hafi verið mjög gagnleg.