139. löggjafarþing — 163. fundur,  14. sept. 2011.

lengd þingfundar.

[15:23]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þarna hitti hv. þm. Bjarni Benediktsson einmitt naglann á höfuðið. Núna er verið að nota það gegn sitjandi stjórnvöldum að þau hafi einu sinni verið í stjórnarandstöðu og stundað þar málþóf. Það er alveg rétt, það var gert, en það er stjórnarandstaðan að gera líka núna. Við fáum mjög lítið út úr því. Það hefur verið talað mjög lengi um eitt mál, stjórnarráðsmálið. Það var líka rætt um það á síðasta þingi, ansi lengi, þannig að mjög lítið nýtt er að koma fram í málinu. (Gripið fram í: Nú?) Hér er málþóf á ferðinni sem ég held að skili mjög litlu.

Við nokkrir þingmenn, fjórir þingmenn, höfum lagt fram tillögu til að höggva á þennan hnút. Það er Eygló Harðardóttir, hv. þm. Framsóknarflokksins, sem á heiðurinn af því að lagt er til að þingið komi að því máli. Það er mesta gagnrýnin sem hefur snúið að því. Ég skil því ekki af hverju við getum ekki bara klárað það mál. Ég bið stjórnarandstöðuna, sem ég er hluti af, og hv. stjórnarþingmenn að sameinast um að reyna að klára málið. Það er hægt að klára það með þeirri tillögu sem hér liggur fyrir. (Gripið fram í: Nei.)