139. löggjafarþing — 163. fundur,  14. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[18:19]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Mikið væri það eftirsóknarvert ef við gætum tekið raunverulega faglega umræðu um þessi efnisatriði á grundvelli ítarlegrar vinnu þar sem þingflokkarnir hefðu allir komið að málinu, í stað þess að ræða um hvort forsætisráðherra gæti lagt niður einstök ráðuneyti og endurskipulagt Stjórnarráðið í skugga innbyrðis átaka í Stjórnarráðinu. Það verður bara að segjast alveg eins og er að átökin sem verið hafa við hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra varpa skugga á málið. (Gripið fram í.) Jafnfaglegt og hv. þingmaður telur að það sé hefur hvorki neitt verið lagt fram til að undirbyggja þá faglegu nálgun sem hann telur að liggi málinu til grundvallar né heldur hefur ríkisstjórninni tekist að komast yfir þá pólitísku gryfju sem hún hefur sjálf grafið sér.

Bara til þess að svara þessu (Forseti hringir.) varðandi Norðurlöndin vil ég endilega sækja allt það til Norðurlandanna sem vel hefur dugað þar og færa það hingað eftir því sem efni standa til.