Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Það er magnað að hæstv. forsætisráðherra hafi ekki svarað í seinna andsvari þeim spurningum sem hv. þm. Birkir Jón Jónsson beindi til hans. (Gripið fram í.) Þetta virðist vera nýja taktíkin hjá hv. stjórnarliðum í þessari umræðu.
Mig langar að þakka hv. þm. Birki Jóni Jónssyni fyrir ljómandi fína ræðu og þá áherslu sem hann lagði á stöðu Alþingis. Það er nokkuð sem ég hefði haldið að núverandi hæstv. fjármálaráðherra og núverandi hæstv. forsætisráðherra hefðu mikinn áhuga á að yrði styrkt. Hvað hefur hæstv. fjármálaráðherra haldið margar ræður um að það ætti að styrkja þingið? (Gripið fram í.) Hvaða ræður voru haldnar hér 2007 um að það þyrfti nánari aðkomu þingsins að hinum og þessum málum þegar gerðar voru allt annars konar breytingar á Stjórnarráðinu en hér er um að tefla? (MÁ: Svaraðu nú.)
Ég spyr hv. þm. Birki Jón Jónsson hvort hann sé ekki sammála mér í því að það þurfi að leggja þetta mál til hliðar og fara nú í þá þverpólitísku vinnu sem þarf og á að vera fyrir hendi. Það á að breyta Stjórnarráðinu (Forseti hringir.) enda kallast það beint á við störf Alþingis.