Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Ekki veit ég um hv. þm. Höskuld Þórhallsson eða hvers vegna hann hefur ekki tjáð sig í þessari umræðu en mér dettur þó í hug að hann sé hugsanlega að bíða eftir því að hv. þm. Mörður Árnason haldi ræðu í málinu og geri grein fyrir sínu sjónarmiði. [Hlátur í þingsal.] Það kann að vera að hv. þm. Höskuldur Þórhallsson og hugsanlega aðrir hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar bíði einmitt eftir því að heyra hvernig hv. þm. Mörður Árnason rökstyður sjónarmið sín í málinu og hvernig hann svarar þeim rökum sem komið hafa fram af hálfu stjórnarandstöðunnar um frumvarpið og þær breytingartillögur sem hv. þingmaður stendur vissulega að sem nefndarmaður í allsherjarnefnd.