139. löggjafarþing — 164. fundur, 15. sept. 2011.
Stjórnarráð Íslands.
674. mál
Virðulegi forseti. Hv. þingmanni verður tíðrætt um fagleg og vönduð vinnubrögð á Alþingi. Mig langar því að spyrja hann hvort honum þyki það fagleg og vönduð vinnubrögð að standa hér í málþófi og varna því að látið verði á það reyna, með atkvæðagreiðslu, hvort málamiðlunartillaga í því ágreiningsefni, í því sem mestur ágreiningurinn er um, nái fram að ganga í þinginu. Finnst hv. þingmanni hann stunda fagleg og vönduð vinnubrögð?