Stjórnarráð Íslands.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir um margt eins skynsamlega ræðu og efni standa til í því ástandi sem ríkir í þinginu og vil spyrja hann í lok þeirrar ræðu, eins og ég hef áður spurt ræðumenn: Hvernig stendur á því að hann er á móti því fyrirkomulagi um heiti ráðuneyta, skiptingu þeirra og skipulag sem með þessu frumvarpi er reynt að nálgast og hefur lengi verið við lýði í Danmörku, Svíþjóð og Noregi, sem eru allt ríki sem við sækjum fyrirmyndir til við lagasetningu og ekki síst við endurreisn samfélagsins úr hrunrústunum sem hans flokkur kom íslensku samfélagi í?