Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir ræðu hans.
Það eru margar spurningar sem við stjórnarandstæðingar höfum en fáum ekki svör við vegna þess að stjórnarmeirihlutinn setur sig ekki á mælendaskrá. Nú hefur hv. formaður allsherjarnefndar gengið í salinn og ég sá að hann punktaði niður nokkrar af þeim spurningum sem þingmaðurinn hafði, en hér vantar alveg á ráðherrabekkina alla ráðherrana.
Mig langar að spyrja þingmanninn vegna þess að hann kom inn á það í ræðu sinni að í nótt hélt hv. þm. Atli Gíslason tímamótaræðu í máli þessu þar sem hann varpaði ljósi á að þetta frumvarp væri byggt á blekkingum. Hv. þingmaður var formaður þingmannanefndarinnar sem hafði það hlutverk að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og hann hrakti þau rök sem koma fram í greinargerð með frumvarpi þessu og sagði að frumvarpið væri ekki byggt á rannsóknarskýrslu Alþingis og ekki skýrslu þingmannanefndarinnar. Hvað finnst þingmanninum um ummæli hv. þm. Atla Gíslasonar? Er þetta frumvarp ekki runnið út í sandinn á þessum forsendum?