139. löggjafarþing — 164. fundur,  15. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[18:27]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú er ljóst að okkur hv. þingmann greinir á um 2. gr. frumvarpsins. Ég tel hana og ég hef lýst því yfir að hún muni auka sveigjanleika og skilvirkni í Stjórnarráðinu og færa það til meira nútímahorfs og tel kannski ekki þar af veita. Ég tel auk þess að þetta muni setja skýrari mörk á milli löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins. Það tel ég líka af hinu góða.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann — af því að 2. gr. er aðalágreiningsatriðið, ég veit að það eru fleiri atriði en ég held að það sé rétt skilið hjá mér að minni ágreiningur er um aðra hluti — hvaða hug hann beri til þeirrar breytingartillögu sem hefur verið lögð fram um að málið komi inn (Forseti hringir.) í þingið í formi þingsályktunartillögu sem verði afgreidd í einni umræðu?