139. löggjafarþing — 164. fundur,  15. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[19:51]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. forseta að mælendaskráin er talsvert löng. Ég held að það stafi einkum og sér í lagi af því að spurningum er m.a. ítrekað beint til hæstv. forsætisráðherra. Ég hugðist gera það í máli mínu áðan en hæstv. forsætisráðherra er ekki hér til að svara þeim spurningum. Ég hugðist fá upplýsingar um eftirfarandi hjá hæstv. forsætisráðherra: Í fyrsta lagi, af hverju að flytja þessar gríðarlegu valdheimildir frá Alþingi til framkvæmdarvaldsins og hæstv. forsætisráðherra? Í annan stað, hvað hyggst hæstv. forsætisráðherra gera með þær valdheimildir sem hún er að reyna að fá hér með frumvarpinu? Við hvorugri þessara spurninga hafa borist svör. Er það einkum og sér í lagi vegna þess að hæstv. forsætisráðherra er ekki í salnum, tekur ekki þátt í umræðum og svarar ekki þeim fyrirspurnum sem til hennar er beint. Ég legg því til að (Forseti hringir.) hv. forseti fresti fundi þar til hæstv. forsætisráðherra sér sér fært (Forseti hringir.) að ræða þetta mikilvæga mál á Alþingi Íslendinga.