Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birki Jóni Jónssyni fyrir snarpa og réttmæta ræðu og skothelda gagnrýni. Það er nú svo að þetta frumvarp elur á auknu stjórnleysi og er nóg af því fyrir hjá hæstv. ríkisstjórn.
Hv. þingmaður vék að sinnaskiptum hæstv. fjármálaráðherra Steingríms J. Sigfússonar. Það minnir um margt á mætan norskan mann sem bjó á Drangsnesi við Steingrímsfjörð. Hann rómaði líf sitt fyrir það að eiga hund sem hlýddi honum í einu og öllu, gersamlega í einu og öllu, alltaf. Ég hitti þennan mæta mann eitt sinn, hann var með hundinn sinn, og ég segi: Hlýðir hann þér alltaf? – Alltaf. Ef þú segir honum að setjast, sest hann þá? – Alltaf. Viltu biðja hann að setjast? – Gutti, sestu. Sestu, Gutti, sestu. Hann vill ekki setjast núna. Þar með var það útrætt mál.
Hæstv. fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon var frægur fyrir að standa á sínu í gegnum árin. Hann þurfti að vísu aldrei að standa við það því hann var í stjórnarandstöðu en við sem höfðum unnið með honum í áratugi höfðum trú á því að hann mundi ekki snúast eins og vindhani í skoðunum sínum. Það hefur hann gert, hæstv. ráðherra, (Forseti hringir.) eins og hv. þingmaður sagði. Ég vil spyrja hv. þingmann: Er ekki alveg eins ástæða til að nefna í þessu sambandi hæstv. forsætisráðherra sem hefur komist upp með það (Forseti hringir.) að fara með ósannindi og segja rangt frá í mörgum tilvikum? Ég nefni bara eitt dæmi: Tilvitnun um málsmeðferð á Alþingi um Líbíu.
(Forseti (RR): Forseti biður hv. þingmenn um að virða þann ræðutíma sem þeir hafa.)