139. löggjafarþing — 164. fundur,  15. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[21:50]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um Stjórnarráð Íslands ásamt þremur nefndarálitum sem þar liggja fyrir. Í upphafi máls míns vil ég fara aðeins yfir það sem ég hef gagnrýnt hér og kallað eftir að fá upplýsingar um. Það er sú breytingartillaga sem lögð er fram af hv. meiri hluta hv. allsherjarnefndar um að 22. gr. sé breytt á þann veg að í staðinn fyrir að hún taki gildi eftir næstu kosningar er lagt til að hún taki gildi strax og lögin verði samþykkt. Þessi grein fjallar um fjölgun aðstoðarmanna og gert er ráð fyrir því að hægt sé að hafa allt að 20 aðstoðarmenn og síðan þrjá til viðbótar eða 23 aðstoðarmenn. Það sem ég gagnrýni fyrst og fremst er að ekki liggur fyrir kostnaðargreining á þessu sem nauðsynlegt er að liggi fyrir áður en frumvarpið er samþykkt.

Í kostnaðarumsögninni er reiknað með að þetta kosti um 100 millj. kr. Þá er miðað við að greinin taki gildi eftir næstu kosningarnar. Ég kalla eftir því að fá að vita hvað þetta þýðir ef greinin tekur gildi um leið og frumvarpið verður samþykkt. Til að vita það verður að sjálfsögðu að vita hve margir aðstoðarmenn er starfandi í dag til að mynda og hver munurinn verður milli þess sem ákveðið er í frumvarpinu, hversu mörgum verður bætt við, til að maður geti áttað sig á kostnaðinum. Ég tel þetta mjög mikilvægt, virðulegi forseti. Ég vil þó segja að ég tel hins vegar rétt, eins og hér er lagt til, að aðstoðarmennirnir komi með ráðherrunum og fari með ráðherrunum. Ég tel mjög skynsamlegt að setja það alveg skýrt í reglur hvernig því er háttað því að mér hefur fundist margir hæstv. ráðherrar fara dálítið frjálslega með þessa hluti, a.m.k. í dag.

Ég vil sérstaklega draga þetta fram í ljósi þess, virðulegi forseti, að þegar við erum að fjalla um lagafrumvörp, fjárlög eða hvað sem það er, þá finnst mér oft vera ríkjandi hálfgert skeytingarleysi af hálfu þingsins eða sumra hv. þingmanna sem taka ekki þátt í umræðunni, kalla ekki eftir upplýsingum og í raun og veru er verið að samþykkja frumvörp þar sem ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað þau þýða í kostnaði. Það þykir mér mjög bagalegt og í raun og veru ekki hægt að bjóða upp á það því ekki þarf að fara mörgum orðum um efnahagsástandið og stöðuna í ríkisfjármálum.

Til að vekja hv. þingmenn sem láta sig þessi mál lítið varða til umhugsunar þá er ágætt að rifja það upp að nú er staðan í öryggismálum sjómanna algerlega óviðunandi. Ég hef sagt það áður í þessum ræðustól og ég skal segja það einu sinni enn að ég tel því miður að menn muni ekki vakna af þessum svefni fyrr en eitthvað hörmulegt gerist. Ég vona hins vegar einlæglega og af öllu mínu hjarta að það muni ekki gerast en ég hræðist það mjög því að það yrði þá ekki í fyrsta sinn. Þjóð eins og Íslendingar sem lifir á þessu, þetta er undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, við höfum ekki efni á að sinna öryggismálum sjómanna eins og okkur ber skylda að gera vegna niðurskurðar til Landhelgisgæslunnar. En á sama tíma erum við hugsanlega að taka ákvarðanir sem skipta milljónum, hér er verið að tala um 100–130 millj. kr. sem þessi kostnaðarauki hefur í för með sér, sem er um einn þriðji af því sem kostar að koma þessum hlutum í lag. Það finnst mér, virðulegi forseti, algerlega óásættanlegt.

Þessu til viðbótar vil ég nefna að búið er að ganga mjög harkalega fram gagnvart heilbrigðisstofnunum í landinu, bæði á landsbyggðinni og á Landspítalanum. Á sama tíma geta menn farið í að fjölga aðstoðarmönnum sem kosta tugi eða hundruð milljóna. Það er algerlega óboðlegt, sem og að það skuli vera þannig að hv. þingmenn viti ekki einu sinni um hvaða upphæðir er að ræða þegar sú ákvörðun er tekin að samþykkja frumvarpið. Það er skýlaus krafa mín að þeir viti það og ég kalla eftir þessum upplýsingum. Ég vil því nota þetta tækifæri til að þakka hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur sem flutti ágætisræðu áðan þar sem hún svaraði þessari spurningu minni í ræðu sinni og sagði að hún mundi beita sér fyrir því að þetta yrði skoðað milli 2. og 3. umr. í hv. allsherjarnefnd og kalla eftir upplýsingum um hver þessi kostnaður væri, og það mundi þá liggja fyrir þegar frumvarpið yrði afgreitt. Því fagna ég sérstaklega og tel mjög mikilvægt að það verði gert.

Ég vil líka rifja upp vegferð hæstv. ríkisstjórnar eins og ég gerði þegar við vorum að samþykkja fjáraukalögin frá árinu 2010. Hver er vegferðin þegar við erum að tala um fjármuni? Hún er sú að fyrstu verk ríkisstjórnarinnar í júní 2009 voru að skera niður hjá eldri borgurum og öryrkjum. Sú skerðing hjá þessum aðilum, eldri borgurum og öryrkjum, átti að vera 7 milljarðar og átti að laga efnahag ríkisins. 7 milljarðar á árinu 2010. En síðan þegar við vorum að samþykkja fjáraukalög fyrir árið 2010 þá var niðurstaðan sú að skerðingin var ekki 7 milljarðar, af því að það var nefnilega leiðrétt í fjáraukalögum ársins 2010. Skerðingin eða aðförin eins og ég vil kalla það að eldri borgurum og öryrkjum var 11 milljarðar. Þetta staðfesti það sem fulltrúar þessara hópa eldri borgara og öryrkja bentu okkur á á fundum í fjárlaganefnd að þetta væri mun meiri og frekari skerðing en ráð var fyrir gert. Það var staðfest þegar við samþykktum fjáraukalög fyrir 2010 í desember á síðasta ári. Ég ætla bara að nefna eitt dæmi í því. Í fjárlögum fyrir árið 2010 var gert ráð fyrir að eldri borgarar mundu greiða 372 millj. kr. í svokölluð vistunargjöld, þ.e. það væri þátttaka þeirra í vistunargjöldum. Niðurstaðan varð sú í fjáraukalögunum voru þetta 1.200 millj. kr. Þetta rúmlega þrefaldaðist.

Það er þetta sem ég er að kalla eftir, virðulegi forseti. Þegar við ræðum svona hluti hér þá verðum við að gera okkur grein fyrir hvað þeir þýða. Þess vegna hef ég gert alvarlegar athugasemdir við það að hv. allsherjarnefnd breyti gildistökuákvæði laganna í meðförum sínum, breyti bráðabirgðaákvæðinu og þar sé sagt að um leið og lögin taki gildi megi ráða þessa aðstoðarmenn. Það er mjög mikilvægt, virðulegi forseti, að upplýsingar um þetta fáist og ég mun kalla eftir þeim áfram. Ég skil reyndar ekki, virðulegi forseti, hvernig hv. þingmenn sem hafa ætlað sér að samþykkja þetta frumvarp geti gert það án þess að vita hvað það þýðir.

Ég heyrði í óundirbúnum fyrirspurnum í dag að hæstv. velferðarráðherra sagði að áfram yrði 3% niðurskurður hjá heilbrigðisstofnunum. Er þá boðlegt að fara að samþykkja hér kannski 130–150 millj. kr. útgjöld bara sisvona á sama tíma? Þetta varðar þá leið sem hæstv. ríkisstjórn hefur verið á. Þetta eru bara staðreyndir málsins, því miður. Menn geta ekki látið fjármál ríkisins sig jafnlitlu varða og gert hefur verið á undanförnum missirum eða að minnsta kosti frá því að ég kom hingað.

Ég vil, virðulegi forseti, enda á því að segja að ég vænti þess og trúi því og treysti og þykist vita að hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir muni standa við þau orð sem hún sagði í ræðustóli Alþingis í dag að eftir þessum upplýsingum yrði kallað í meðförum málsins á fundum hv. allsherjarnefndar milli 2. og 3. umr. Það er haldreipi mitt og ég mun ekki fara frekar yfir þennan kostnað sem ég hef gert mjög alvarlegar athugasemdir við, í ræðum mínum á eftir. Ég tel mikilvægt, og þess vegna ræði ég þetta atriði frumvarpsins, að draga fram um hvað er að ræða í raun og veru í ljósi þess sem ég nefndi um öryggismál sjómanna og aðförina að eldri borgurum og öryrkjum. Þessar upplýsingar, sem ég hef svo sem oftar nefnt í þessum ræðustóli, hljóta að vekja suma hv. þingmenn til umhugsunar áður en þeir samþykkja frumvarpið.