139. löggjafarþing — 164. fundur,  16. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[00:20]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því, út af ummælum hv. þm. Björns Vals Gíslasonar, að segja að standi hann í þeirri trú að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis skrifi sögu Sjálfstæðisflokksins — öll sú vinna sem í hana var lögð fjalli um það og að niðurstaða þingmannanefndarinnar fjalli um niðurstöðu um sögu þess flokks og aðgerðir — er það að minnsta kosti þannig í þessu máli að Sjálfstæðisflokkurinn hefur eitthvað lært, Sjálfstæðisflokkurinn er þó að taka mark á þessari vinnu. Hann er þó að hlusta á það sem segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hann er þó að hlusta á það sem segir í niðurstöðu þingmannanefndarinnar og vill breyta eftir því. Það eru hins vegar ríkisstjórnarflokkarnir sem hlusta ekkert á þær umbætur sem koma fram í þessum skýrslum (Gripið fram í.) og vilja fara sínar leiðir í því að þjappa saman valdi og færa það héðan í stað þess að stunda þá valddreifingu sem þar er boðuð og er rauði þráðurinn í gegnum alla gagnrýni sem viðhöfð hefur verið. — Þannig er umbótin mismunandi hjá stjórnmálaflokkunum.

Þegar við lítum á það frumvarp sem við ræðum hér kemur í ljós að samkvæmt niðurstöðu fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins megi reikna með að kostnaðarauki vegna þess verði á annað hundrað milljónir. Þetta er reyndar mjög óljóst, hefur alls ekki verið farið í nægilega úttekt á þessu, en er í algjöru ósamræmi við það sem við höfum verið að gera. Ég vil benda á að hætt var við að ráða aðstoðarmenn þingmanna landsbyggðarkjördæmanna, þeim sem búið var að ráða var sagt upp störfum, kostnaðurinn við það er sennilega um helmingi minni en sá kostnaðarauki sem fylgir þeim aðstoðarmönnum sem ráðherrarnir eiga að fá samkvæmt þessu frumvarpi. Það er góð regla að horfa til þess, sérstaklega á þessum tímum, að við þurfum að afla tekna áður en við tökum til við að eyða frekari peningum. Það er grundvallaratriði í öllu góðu bókhaldi, hvort sem það er heimilisbókhaldið eða annað.

Þá vil ég vitna hér aðeins til þeirrar skýrslu sem Landsvirkjun gaf út nú á vordögum. [Hlátur í þingsal.] Það er þannig að (Gripið fram í.) langvarandi kreppur eru kostnaðarsamar að því leyti að framleiðsluþættir standa ónotaðir, vinnandi hendur fá engan starfa og sparnaður safnar ryki á bankareikningum án þess að vera varið til fjárfestinga. Það er því töluverður þjóðhagslegur ábati fólginn í því að koma í veg fyrir eða mæta atvinnuleysi á samdráttartímum. (BJJ: Rétt.) Á þessu virðast hv. stjórnarflokkar ekki átta sig, þeir átta sig ekki á því að það þarf að afla tekna til að fara í kostnaðarsöm útgjöld eins og fylgja meðal annars þessu frumvarpi. Þeir gleyma því.

Fyrsta kastið hittu framkvæmdir vegna orku og stóriðju á Íslandi beint í mark í þjóðhagslegum skilningi þar sem töluverður slaki var í hagkerfinu undir lok sjöunda áratugarins þegar framkvæmdir við Ísal í Hafnarfirði fóru fyrst af stað og það sama átti við á tíunda áratugnum þegar álver var byggt á Grundartanga og Ísal stækkað. Þessar heppilegu tímasetningar skipta töluverðu máli þegar þjóðhagslegur ábati er annars vegar. Þetta kemur vel fram í grein sem Páll Harðarson ritaði í Fjármálatíðindi árið 1998 (Gripið fram í.) og nefnist „Mat á þjóðhagslegum áhrifum stóriðju á Íslandi 1966–1997“. (Gripið fram í: Rétt.) Þar kemst Páll að þeirri niðurstöðu að 60% af þjóðhagslegum ábata landsins vegna stóriðju á árabilinu 1966–1997 megi einmitt rekja til þessara hagstæðu tímasetninga en það vill svo til að aðstæður eru akkúrat þær sömu nú (Gripið fram í.) í íslensku samfélagi og voru þá. Það er ekki nema von, virðulegi forseti, að þeir glotti hér og hlæi og flissi, hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna, vegna þess að þetta er atriði sem þeir gleyma og horfa fram hjá í öllu samhengi. Þeir hugsa (Gripið fram í.) ekkert um það, þeir hugsa bara um það — hæstv. ráðherra Árni Páll Árnason hlær og gantast (Gripið fram í.) í hliðarsölum og truflar hér í sal en hann er að sækja heimildir til að geta ráðið sér frekari aðstoðarmenn til að geta látið sitt ráðuneyti bólgna út, sína starfsemi. (Gripið fram í.) Hann er ekkert að hugsa um það hvernig þarf að afla tekna, hann hlær og flissar af ábyrgðarleysi þegar kemur að þeim þætti. Þannig er vandinn í þessum ríkisstjórnarflokkum, virðulegi forseti, það er ekki mikil ábyrgð sem fylgir störfum hjá þessu fólki. (HHj: Það er nú gott að hafa …) Já, það er gott fyrir ykkur að hlusta á þessa lexíu, hv. þm. Helgi Hjörvar, og ég mundi ráðleggja þér að halda nú aftur af þér um stund og leggja við hlustir. Þetta er þér holl lesning.

Hið sama mun verða upp á teningnum núna, tímasetning orku- og stóriðjuframkvæmda virðist vera ákaflega heppileg nú um stundir þar sem slakinn í þjóðarbúskapnum (Forseti hringir.) hefur sennilega aldrei verið meiri (Forseti hringir.) frá stríðslokum. Hér hefur aldrei verið meiri slaki.

(Forseti (ÁI): Hv. þingmaður er beðinn um að gera hlé á máli sínu þegar forseti slær í bjöllu. Forseti vill fara fram á það við hv. þingmenn að hafa ró í salnum.) (Gripið fram í: Hv. stjórnarliða.)

Já, virðulegi forseti, það er óhætt að fara að taka það fram að forsetar þurfa ekki að áminna aðra í þessari umræðu en hv. þingmenn stjórnarflokkanna. Það er þannig, þeir hafa verið áminntir hér fyrir að vera með alls konar gífuryrði og ósæmilegt orðbragð ítrekað í þessari umræðu. Við höfum látið það eiga sig, málið er alvarlegra í okkar huga en svo að gantast verði með það.

Búið er að taka mikið af ræðutíma mínum sem átti að fara í miklu innihaldsríkara mál en þessar athugasemdir við þingmenn sem hafa ekki gefið frið, en ef farið er eftir skýrslu Landsvirkjunar munum við sjá verulegan ábata verða í íslensku efnahagslífi á alveg ótrúlega skömmum tíma. Störf sem munu skapast vegna arðgreiðslna munu þannig verða um 1.100–1.400 á ári (Gripið fram í: Rétt.) næstu árin. Uppsöfnuð störf á árinu 2013, ef ákvarðanir væru teknar, væru orðin á fjórða þúsund. Það munar um það við þær aðstæður sem við höfum hér. Ef arðgreiðslurnar sem þessi áætlun mun skila af sér yrðu bornar saman við skatttekjur ríkissjóðs væri hægt að borga hverjum Íslendingi árlega 280–320 þús. kr. Arðgreiðslur af þessu gætu greitt fyrir alla háskóla, framhaldsskóla, menningu, íþróttir, trúmál, löggæslu og dómstóla og fangelsi eða þær gætu borgað fyrir allt heilbrigðiskerfið. (Gripið fram í: … norður?) Ja, hluta af henni. [Hlátur í þingsal.] (Gripið fram í: Þetta er ekki …) (Gripið fram í.) Ef við mundum vilja nota þessar arðgreiðslur, virðulegi forseti, til að taka á þeirri miklu skuldasöfnun sem verður til í tíð núverandi ríkisstjórnar (Gripið fram í.) sem er náttúrlega gríðarlegri en hún þarf að vera, miklu gríðarlegri. (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁI): Forseti fer enn fram á það að hv. þingmenn hafi hljóð í salnum.)

Ég fer nú fram á það við hæstv. forseta að fá viðbótartíma, ég hef orðið fyrir slíkum truflunum í þessari ræðu. (Gripið fram í.) [Hlátur í þingsal.] (Gripið fram í: Málþóf …) (Gripið fram í: Hv. þingmaður er með ræðuna útprentaða …) (Gripið fram í: Málþóf …) Ef hægt væri að greiða niður skuldir íslenska ríkisins, ef ákvarðanir væru teknar um að fara í þær framkvæmdir sem hér eru á mjög skömmum tíma — og áfram flissa hv. þingmenn enda er alvaran ekki mikil í málflutningi þeirra eða aðgerðum.

Árið 2020, ef þessar arðgreiðslur gengju eftir, mundu þær nema 65 milljörðum kr. til íslenska ríkisins og árið 2025 90 milljörðum kr. Áfram flissa hv. þingmenn. Það er ótrúlegt að fylgjast með því, virðulegi forseti, það er nú kannski hlaupinn svefngalsi í þessa hv. þingmenn og þá væri bara sómi að því (Gripið fram í.) að hæstv. ráðherra Árni Páll Árnason kæmi sér heim og færi að leggja sig og kæmi hingað aftur í nótt þegar hann væri búinn að fá sér kríu. Það er alveg ótrúlegt að fylgjast með því, virðulegi forseti, í þessu frumvarpi sem í flestu öðru sem kemur fram hjá ríkisstjórnarflokkunum hvað er lítið hugsað fyrir því að afla tekna sem er algjört grundvallaratriði en það er ekki mál fyrir þá að auka útgjöld. Á hverjum kemur þetta niður? Við hverja kemur þetta mest, virðulegi forseti? Það eru þeir hópar sem þessir hv. þingmenn sem hér eru flissandi í salnum þykjast ætla að standa vörð um. Eða hvað var með skjaldborgina um heimilin? Og hvar eru málefni öryrkja og aldraðra í þessu samfélagi (Gripið fram í.) sem þessir flokkar á hátíðarstundum eru að reyna að gorta sig af að ætla að standa vörð um, (Forseti hringir.) standa vörð um hagsmuni þeirra? Hvað er með þessa mikilvægu málaflokka? Lausnin á því að geta sómasamlega staðið (Forseti hringir.) undir íslensku samfélagi, undir því velferðarkerfi sem við viljum, liggur í þessu, í því að stíga hér ákveðin skref en ekki þau sem hæstv. (Forseti hringir.) ráðherrar í ríkisstjórninni (Forseti hringir.) bera hér á borð fyrir okkar þar sem á að fara að auka (Forseti hringir.) enn frekar útgjöld á kostnað þessara hópa.