139. löggjafarþing — 164. fundur,  16. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[00:43]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta allshn. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir þetta svar frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Ég ætla að benda honum á að það er alger tímasóun að ræða almenna atvinnumöguleika og vinnumarkaðsmál við fulltrúa Samfylkingarinnar því að kratavæðing, eins og ég kalla það, gengur út á það að fjölga opinberum störfum. Kratar þrífast á því að vera í opinbera geiranum, að vera á spenanum hjá hinu opinbera og vera í því samfélagi. Kratar hafa á einhvern hátt, hvar sem er í heiminum, aldrei kynnst því að vinna á almenna vinnumarkaðnum. Þess vegna eru kratar svo viljugir til að eyða skattfé, eins og kemur fram í frumvarpi þessu, án þess að hugsa um afleiðingarnar. Þetta er staðreynd sem við þekkjum alls staðar að úr heiminum. [Frammíköll í þingsal.]

(Forseti (RR): Forseti biður hv. þingmenn í salnum að gefa ræðumanni hljóð. Að öðrum kosti frestar forseti fundi og óskar eftir fundi með þingflokksformönnum til að stilla til friðar í salnum.) (Gripið fram í: Góð hugmynd.)

Ég skora á forseta að fresta fundi (Efnrh.: Af því að hún er svo verklaus.) fyrst hún er hvött til þess hér af þingmönnum Samfylkingarinnar.

(Forseti (RR): Forseti hyggst fresta fundi í fimm mínútur.)

Ég þakka fyrir.