139. löggjafarþing — 164. fundur,  16. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[01:32]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Auðvitað vekur hún áhyggjur hjá mörgum hv. þingmönnum sú atburðarás sem hv. þingmaður lýsti hér áðan að það sé upphaf málsins, frumorsök þess, að hæstv. forsætisráðherra hafi ekki náð fram þeim breytingum sem lýst er í samstarfsyfirlýsingunni í einum 10 liðum og vilji því fara þessa leið til að ná fram þeim breytingum sem þar er lýst. Þá er bara sá vandi á ferð, frú forseti, að þessi leið að því markmiði er því marki brennd að hún breytir í grundvallaratriðum hvernig við högum skipulagi Stjórnarráðsins.

Þau markmið sem sett eru fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar breytast nú í það að vera ekki bara einhverjar tilfærslur á milli ráðuneyta og stofnun nýrra ráðuneyta með samþykki Alþingis, heldur líka, það frumvarp sem hér er um að ræða, í að það vald færist frá þinginu til forsætisráðherra.

Það er undarlegt á að hlýða, frú forseti, þegar gerðar eru við það athugasemdir af hálfu stjórnarliða að minni hlutinn á þinginu skuli vilja standa vörð um þau réttindi þingsins og vilja ræða það mál, þegar sérstaklega er kallað eftir því, meðal annars í ljósi þess hvernig til var stofnað og hvert upphaf þessa máls var, að stjórnarliðar sýni fram á hvaða knýjandi nauðsyn rekur þetta mál.

Hvers vegna kemur forsætisráðherra ekki til þings með þær breytingar sem lagt er upp með í samstarfsyfirlýsingunni, setur þær í lagafrumvarp og leggur þær fyrir þingið til synjunar eða samþykkis og nær þannig fram þeim breytingum sem samið var um við stofnun ríkisstjórnarinnar?