samvinna milli ríkissjónvarpsstöðva vestnorrænu ríkjanna.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um samvinnu milli ríkissjónvarpsstöðva vestnorrænu ríkjanna.
Þetta er tillaga sem Íslandsdeild þingmannanefndar Vestnorræna ráðsins flytur, en þar er lagt til að Alþingi hvetji mennta- og menningarmálaráðherra fyrir hönd Ríkisútvarpsins til að útvíkka og styrkja samstarf RÚV við útvarp Grænlands og útvarp Færeyja með því að auka framboð á fréttum og fréttatengdu efni frá Færeyjum og Grænlandi. Ríkisútvarpið geri sjónvarpsútsendingar frá Færeyjum og Grænlandi aðgengilegar í svo miklum mæli sem unnt er. Til lengri tíma litið verði stefnt að samstarfi milli stöðvanna um framleiðslu á efni, svo sem sjónvarpsþáttaröðum.
Tillagan byggist á ályktun nr. 5/2010 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins í ágúst 2010 í Tasiilaq á Grænlandi en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Valgerður Bjarnadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Bjarni Benediktsson, með fyrirvara sem er almenns eðlis, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Ólöf Nordal og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.