mótun þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland.
Virðulegi forseti. Fyrst aðeins varðandi ummæli hv. þingmanns um að þau viðhorf sem koma fram í nefndaráliti okkar hafi ekki endurspeglast á vettvangi utanríkismálanefndar þá vil ég segja um það að ég á ekki fast sæti í utanríkismálanefnd heldur er ég varamaður. Ég kom þessum sjónarmiðum mínum sem birtast í nefndarálitinu á framfæri við 1. umr. málsins og ég og hæstv. utanríkisráðherra og gott ef ekki formaður utanríkismálanefndar áttum það samtal hér. Ég kom því miður ekki sjálf að annarri vinnu nefndarinnar fyrr en á seinasta fundi og við hv. þm. Einar K. Guðfinnsson, sem vorum þarna bæði sem varamenn, vorum að sjálfsögðu sammála um að þetta væri okkar afstaða.
Ég ætlaði ekki að fara standa í vegi fyrir því að málið yrði tekið út. Ég þarf ekki að samþykkja málið, ég er með aðra tillögu um að málinu verði vísað í annan farveg, að því verði frestað, ekki bara út frá því sem við höfum verið að ræða hér um mismunandi áherslur í varnar- og öryggismálum, heldur líka vegna þess að mér finnst verkaskiptingin óljós eins og ég fór yfir í ræðu minni. Við getum verið mjög sammála og ég tek undir það hjá báðum ræðumönnunum sem töluðu á undan mér að við getum haft breiða samstöðu gegn ýmissi vá sem á okkur herjar. Öll viljum við taka höndum saman til að efla viðbrögð við náttúruhamförum, öll viljum við bregðast við alþjóðlegum glæpasamtökum. Það þarf ekki að telja þetta upp. Auðvitað getum við sameinast um þetta. En það er ekki bara það sem við eigum að vera að tala um. Það var það sem ég var að gagnrýna. Varnar- og þjóðaröryggisáætlun á grundvelli herleysis þarf ekki að þýða að við séum með lokuð augun fyrir því sem er að gerast og sú staðreynd að við höfum mismunandi skoðanir til varnarbandalaga, vil ég kalla það, kemur óneitanlega (Forseti hringir.) í veg fyrir að við gerum líkt og t.d. í Noregi þar sem flokkssystkin hv. þingmanns, (Forseti hringir.) sem eru vinstri sinnuð líkt og hér, standa sameiginlega að (Forseti hringir.) varnar- og öryggisstefnu, norskri (Forseti hringir.) varnar- og öryggismálastefnu, og eru hlynnt veru Noregs í Atlantshafsbandalaginu.