Landsbókasafn -- Háskólabókasafn.
Virðulegi forseti. Við fyrri umræðu um frumvarpið og innan menntamálanefndar má segja að helstu athugasemdir mínar hafi snúið að mikilvægi atvinnulýðræðis innan stofnunarinnar og horfði ég þá sérstaklega til mikilvægis stofnunarinnar sem fræðistofnunar og tengsla hennar við Háskóla Íslands. Hins vegar verð ég að segja að umræðan innan nefndarinnar hefur svo sannarlega vakið menn af værum blundi varðandi þetta mikilvæga málefni, atvinnulýðræði. Það er von mín að í framhaldinu, sérstaklega þar sem hæstv. forsætisráðherra tjáði sig mjög mikið um þetta, að hún muni taka það aftur í fangið og skoða hvernig við getum í auknum mæli tryggt atvinnulýðræði innan opinberra stofnana og hvernig stjórnun þessara stofnana eigi að vera háttað. (Forseti hringir.) Í trausti þess mun ég styðja þetta mál.