139. löggjafarþing — 165. fundur,  16. sept. 2011.

Landsbókasafn -- Háskólabókasafn.

760. mál
[21:16]
Horfa

Skúli Helgason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þm. Eyglóar Harðardóttur að á milli 2. og 3. umr. fjallaði hv. menntamálanefnd um þetta atriði sem tengist frumvarpinu um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og laut að þætti starfsmanna og hlutdeild í stjórnun, stefnumótun og ákvarðanatöku innan stofnana á vegum ríkisins. Það varð niðurstaða nefndarinnar að við töldum fullt tilefni til að fram færi heildstæð úttekt í öllum ríkisgeiranum á stöðu þessara mála, á stöðu atvinnulýðræðis. Það yrði þá afgreitt heildstætt en ekki tekin sérstök ákvörðun út frá þessu eina frumvarpi því hér er í reynd verið að færa skipan mála varðandi hlutverk stjórna til samræmis við önnur lög sem samþykkt hafa verið á liðnum árum.

Úttekt á stöðu atvinnulýðræðis í opinbera geiranum á fullan rétt á sér og það er niðurstaða okkar að fara fram á að slík úttekt verði gerð.