139. löggjafarþing — 166. fundur,  17. sept. 2011.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

704. mál
[11:17]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsmenn lífeyrissjóða og það fjallar fyrst og fremst um stjórnarmenn og framkvæmdastjóra og hæfisskilyrði sem setja eigi yfir þá. Ég get ekki annað en verið sammála því að öllu leyti enda skrifaði ég undir nefndarálitið með fyrirvara sem og öll nefndin.

Í nefndarálitinu eru breytingartillögur og síðan hefur formaður nefndarinnar, Helgi Hjörvar komið með breytingartillögu um séreignarsparnað. Sumir voru farnir að halda að það mundi gleymast að framlengja séreignarsparnaðinn eins og boðað hafði verið, en hér kemur hann frá hv. formanni nefndarinnar.

Það má segja að breytingartillögurnar skipti kannski meira máli í frumvarpinu en frumvarpið sjálft þótt ágætt sé að setja sterkari kröfur um hæfi stjórnenda lífeyrissjóða. Þarna fara um gífurlega miklir fjármunir og skiptir verulegu máli að stjórnendur þeirra séu hæfir til að fara með það fé því það er ekki auðvelt og hrunið sýndi það einmitt. Eins og ég fór í gegnum í 2. umr. urðu lífeyrissjóðirnir fyrir miklu áfalli í hruninu, eiginlega miklu meira en kemur fram í bókunum þeirra, vegna þess að erlendar eignir þeirra, 40%, héldu verðgildi sínu í erlendri mynt, þ.e. hækkuðu mikið í krónum og bættu gífurlega á ávöxtunina, nánast tvöfölduðust vegna þess að krónan féll en sjóðirnir eru mældir í krónum. Þess vegna varð áfall þeirra miklu meira en kemur fram í reikningum þeirra. Það væri athyglisvert að fara í gegnum það af óháðum aðila. Mér skilst að í gangi sé rannsókn á lífeyrissjóðunum en því miður er það að frumkvæði lífeyrissjóðanna sjálfra. Það er alltaf mjög vafasamt eða setur annan blæ á könnunina, þegar frumkvæðið kemur frá þeim sem rannsaka á en ekki frá einhverjum öðrum, t.d. löggjafanum. Við verðum að vona að sú rannsókn sé nægilega hlutlaus til að varpa ljósi á það sem gerðist en það hefur væntanlega að einhverju leyti stafað af því að menn voru ekki nógu varkárir og voru kannski ekki alveg nógu hæfir til að vinna á mjög erfiðum markaði sem fjármálamarkaðurinn er, og krefst mikils hyggjuvits og mikillar þekkingar.

Ef ég ræði fyrst breytingartillögu hv. þm. Helga Hjörvars, þá er verið að framlengja úttektir á séreignarsparnaði sem því miður hafa farið í þann farveg að þær eru teknar út til lífsviðurværis. Upphæðirnar eru svo lágar. Fyrst var það 70 þús. kr. á mánuði. Þetta eru svo lágar upphæðir á hverjum mánuði að það breytir eiginlega engu varðandi skuldastöðu heimilanna. Jú, það getur vissulega, herra forseti, hjálpað lántakendum og skuldugum heimilum að ráða við afborganir lána og getur líka vissulega hjálpað fólki sem verður atvinnulaust til að bæta upp tekjumissinn að hluta, en bara að hluta.

Ég flutti frumvarp fyrir einu eða tveimur árum þar sem ég gerði ráð fyrir því að menn gætu tekið út allan sparnaðinn og látið hann ganga beint til greiðslu á vanskilum og skuldum til að létta skuldabyrðina þannig að það mundi muna eitthvað um það, því sumir eiga jafnvel 10 millj. í séreignarsparnað, það er til í dæminu. Þá hefði virkilega munað um það frekar en þegar menn eru að taka út milljón sem dreifist á heilt ár, 70 þús. kr. á mánuði.

Hér er heimildin framlengd. Þessi aðferð leiðir til tvenns. Í fyrsta lagi, í frumvarpi mínu um að þetta yrði skuldajafnað á móti skuldum sem væru í vanskilum eða sem menn réðu ekki við, átti að ganga úr skugga um að aðgerðin mundi hjálpa mönnum endanlega, þ.e. þeir mundu ekki verða gjaldþrota eftir aðgerðina. Af hverju var það lagt til? Vegna þess að séreignarsparnaðurinn er ekki aðfararhæfur. Hann er vernduð eign gagnvart gjaldþrotum þannig að sú eign stendur eftir. Það skilyrði var sett í frumvarpinu að lagt yrði mat á hvort aðgerðin, þ.e. að taka séreignarsparnaðinn út og þá stórar upphæðir til skuldajöfnunar, mundi hjálpa fjölskyldunni yfir hjallann þannig að tryggt væri að heimilið yrði ekki gjaldþrota.

Hér er verið að taka út séreignarsparnað og það er ekkert sem segir að menn verði ekki gjaldþrota eftir það, ekki neitt. Þetta getur hjálpað mönnum í smátíma, svo verða menn gjaldþrota og þá er séreignarsparnaðurinn farinn, hann bara hvarf inn í hítina. Þessu hef ég verið á móti alla tíð, fyrir utan að þetta eyðileggur sparnað í landinu, sparnað sem er allt of lítið um. Þetta er frjáls sparnaður vegna þess að menn velja þetta sjálfir og það er allt of lítið um frjálsan sparnað í landinu. Ávöxtunin á þessum sérreikningum hefur verið nokkuð þokkaleg, með verðtryggingu, herra forseti, sem allir eru að gagnrýna, og þetta hefur verið góður sparnaður. Með þessu er verið að eyðileggja sparnaðinn hjá þessu fólki, það er verið að ganga á hann.

Þessu tvennu hef ég verið á móti. Þetta dugar kannski ekki til að leysa vandann, menn geta orðið gjaldþrota engu að síður og þá er sparnaðurinn farinn. Hann er ekki verndaður fyrir gjaldþrotum eins og hann væri ella, ef hann væri ekki tekinn út, þá ættu menn sparnaðinn eftir sem áður. Hitt sem ég hef haft á móti því að menn notfærðu sér þessa aðferð er að hún eyðileggur innlendan sparnað. Öndvert við það sem haldið er fram þá hefur séreignarsparnaðurinn vaxið þrátt fyrir þessar úttektir vegna þess að það er svo stór hluti séreignarsparenda og stór hluti heimila sem eru ekki í vandræðum og heldur áfram að spara. Annar ókostur við séreignarsparnaðinn er að þegar hann er tekinn út kemur hann fram sem tekjur, sem er fráleitt. Lengi vel skerti hann lífeyri hjá almannatryggingum en það er búið að laga það þannig að hann gerir það ekki lengur en vextirnir af honum gera það hins vegar. Þetta er það neikvæða. Vegna þess arna mun ég ekki getað staðið að þessari breytingartillögu hv. formanns efnahags- og skattanefndar Helga Hjörvars þó að ég skilji alveg það sem er á bak við hana. Ég get ekki verið með þessu en ég ætla ekki að greiða atkvæði gegn því. Ég mun sitja hjá og legg til við aðra góða þingmenn að þeir geri það sömuleiðis.

Síðan er hér önnur breytingartillaga sem er frá mér, herra forseti, sem hefur verið flutt nokkrum sinnum. Hún gengur út á allt annað, hún gengur út á að auka lýðræði í lífeyrissjóðunum. Í lífeyrissjóðunum hefur verið mikil umræða um að auka lýðræði. Það er svo merkilegt að þessi þvingaði sparnaður var settur á 1974 með lögum frá Alþingi. Það var bara lítil setning sett inn í lög:

„Öllum launþegum er rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps.“

Allir launþegar voru skyldaðir til að greiða iðgjöld í lífeyrissjóð en engin lög voru til um lífeyrissjóðina eða hvernig stjórnun þeirra skyldi háttað, o.s.frv. Mörgum árum síðar voru sett lög um lífeyrissjóðina og ég man að mikil átök urðu um hvernig stjórnun þeirra yrði háttað. Og af hverju urðu þau? Vegna þess að við erum að tala um gífurlega hagsmuni. Það eru gífurlegir hagsmunir að fá að stýra 2.000 milljörðum í íslensku efnahagslífi.

Því miður er það enn þannig að atvinnurekendur tilnefna helming stjórnarmanna og stéttarfélög hinn helminginn. Nú geta sumir sagt að stéttarfélögin, jú, það sé ákveðið lýðræði. Menn kjósa í eitthvert stéttarfélag, svo fer það upp og endar jafnvel hjá BSRB eða ASÍ. En það lýðræði er ákaflega þunglamalegt og ef maður lítur á stjórnir stéttarfélaga þá er ekki mikið um byltingar á þeim bæjum. Þetta eru nánast sömu mennirnir ár eftir ár, yfirleitt karlmenn því miður, og lítið að gerast í lýðræðisátt. Jú, það verða einstaka sinnum byltingar og það varð t.d. bylting hjá VR, Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, núna fyrir skömmu. Þar kom fram ákveðið lýðræði og segja má að það sé kannski ágætt því sjóðfélagar Lífeyrissjóðs verslunarmanna hafa áhrif á VR og VR tilnefnir fjóra af átta stjórnarmönnum í Lífeyrissjóði verslunarmanna. Það kemur svona hálfgildings lýðræði í Lífeyrissjóð verslunarmanna ef þessi lýðræðisást heldur áfram innan VR.

Í breytingartillögu minni er sagt: „Lífeyrissjóður er eign sjóðfélaga sinna.“ Það finnst mér mjög mikilvægt Það er ekki sagt að lífeyrissjóður sé eign sjóðfélaga heldur sjóðfélaga sem hóps. Þetta er ákveðin sameign og byggist að sjálfsögðu á þeim réttindum sem sjóðurinn veitir. Allir þeir peningar, þessir 2.000 milljarðar, sem eru í lífeyrissjóðum, standa á móti þeim réttindum sem lífeyrissjóðirnir lofa. Lífeyrissjóðirnir lofa verðtryggðum lífeyri, barnalífeyri, makalífeyri, örorkulífeyri og náttúrlega fyrst og fremst ellilífeyri. Þessar lífeyristegundir eru allar verðtryggðar. Þeir sem endalaust eru að gagnrýna verðtrygginguna ættu að hafa í huga að það er beint samhengi á milli verðtryggðra útlána lífeyrissjóðanna og kaupa þeirra á verðtryggðum bréfum og þess að þeir geti borgað verðtryggðan lífeyri til aldraðs fólks og öryrkja. Og þeir sem eru á móti verðtryggingu eru í rauninni að segja að þeir ætli þá að skerða lífeyri hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og barna- og makalífeyrisþegum. En hér er sem sagt lögð til grein þar sem segir: „Lífeyrissjóður er eign sjóðfélaga sinna.“

B-liður 2. gr. er mjög athyglisverður. Þar er sagt að á eftir orðinu „sjóðfélagar“ í fyrri málslið 2. mgr. 18. gr. laganna, þar sem stendur að upplýsa eigi menn um stöðu þeirra hjá lífeyrissjóðnum, komi: sem og hlutdeild hans í hreinni eign til greiðslu lífeyris. Þarna er lagt til að sjóðfélagar séu loksins upplýstir um það hvers virði réttindi þeirra eru. Herra forseti. Ég endurtek: Sjóðfélagar skulu vera upplýstir um það hvers virði réttindi þeirra í lífeyrissjóðunum eru.

Eins og ég gat um áðan eru 2.000 milljarðar í lífeyrissjóðunum og ef því er dreift á heimilin í landinu, 120 þús. heimili, þá á hver einasta fjölskylda í landinu um 15–16 millj. í lífeyrissjóðum. 16 millj. á hvert heimili í landinu hjá lífeyrissjóði sínum. Svo mikil er eign hvers heimilis, verðmæti réttindanna. Og ég er viss um að ef fólk fengi að vita hvers virði þeirra einstaklingsbundnu réttindi eru, samkvæmt þessari grein, þá mundu menn verða miklu áhugasamari um lífeyrissjóðina. Ef einhver þingmaður t.d. fær að vita að lífeyrisréttindi hans séu 25 millj. kr. virði eða einhver sjómaður fær að vita að lífeyrisréttindin hjá Lífeyrissjóði sjómanna séu 30 millj. kr. virði eða 40 millj. kr. virði, þá er ég viss um að þeir hefðu miklu meiri áhuga á lífeyrissjóðnum sínum og mundu mæta á fundi eða taka þátt í rafrænni kosningu til að kjósa stjórn — en um það snýst einmitt næsta breyting.

Með henni er lagt til að félagsfundur í lífeyrissjóði kjósi lífeyrissjóði stjórn. Þetta er aðalbreytingin sem segir að sjóðfélagar í lífeyrissjóðnum sem eiga að meðaltali — ja, heimilin eiga 15 millj., hver sjóðfélagi á kannski 10 millj. að meðaltali, komi að því að velja þá menn sem stjórna þessu fé og ávaxta það, fé sem þeir eru gersamlega háðir í ellinni eða ef þeir verða öryrkjar, fyrir fjölskyldur þeirra ef þeir falla frá eða eitthvað slíkt. Þannig að hagsmunir manna af þessu fé í lífeyrissjóðnum eru náttúrlega mjög miklir. Í dag vita menn þetta varla. Launþegar eru bara skyldaðir til að greiða 4% af launum og þeir vita varla að fyrirtækið greiðir 8% af launum þeirra í lífeyrissjóðinn. Það fara 12% af launum allra landsmanna inn í lífeyrissjóðina og þessu fé er í dag stjórnað af einhverjum öðrum. Reyndar er lýðræði hjá tveimur lífeyrissjóðum en hjá þeim flestum ríkir lýðræðisleysi þar sem SA, Samtök atvinnulífsins, tilnefna helming stjórnarmanna, án þess þó að atvinnurekandinn hafi neina hagsmuni í sjóðnum. Hann á engin réttindi í sjóðnum nema bara fyrir sig prívat og persónulega. Hann á enga hlutdeild í réttindum starfsmanna sinna.

Hér er lagt til að sjóðfélagarnir kjósi stjórn í lífeyrissjóðunum og komi þannig að vali þeirra manna og kvenna sem munu svo í framtíðinni ávaxta og ráðstafa fé sjóðfélaganna.