skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Frú forseti. Ég hef flutt þessa tillögu mjög oft á Alþingi. Það er því ekki satt sem kom fram í máli hv. þm. Helga Hjörvar að þetta hafi ekki verið mikið rætt. Búið er að flytja þetta þrisvar sinnum áður.
Þessi grein segir að lífeyrissjóðurinn sé eign sjóðfélaga og sumir kunna að spyrja: Nema hvað? En það er nefnilega svo að iðgjöldum er háttað þannig að atvinnurekendur greiða 8% og sjóðfélagar yfirleitt 4% eða samtals 12% af launum allra landsmanna og það kann að leiða til þess að sumir telji að atvinnurekendur eigi hlut í lífeyrissjóðunum. En sjóðfélagarnir eru þeir einu sem eiga réttindi hjá lífeyrissjóðunum og þess vegna er réttmætt að segja að þeir eigi lífeyrissjóðina til að hafa það alveg á hreinu. Ég segi já.