140. löggjafarþing — 2. fundur,  3. okt. 2011.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:38]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Góðir landsmenn. Alþingi Íslendinga var sett á laugardaginn við þær nú venjubundnu aðstæður að þúsundir manna mótmæltu við þingsetninguna. Þó þingmenn og ráðherrar þykist nú ekki frekar en endranær vita hverju nákvæmlega var verið að mótmæla þá get ég frætt þingið um það hér og nú að það var verið að mótmæla Alþingi og setningu þess. Við búum í landi þar sem 90% þjóðarinnar bera ekki traust til þjóðþingsins, 13% bera traust til stjórnarflokkanna og 7% bera traust til stjórnarandstöðuflokkanna og stór hluti þjóðarinnar telur að þingmenn hafi ekki lengur umboð til að sitja á þingi. Hluti þessa fólks var fyrir utan á laugardaginn og vildi tjá þingmönnum það. Þegar svo er komið að setning þjóðþingsins getur ekki farið fram með eðlilegum hætti vegna reiði almennings er kominn tími til að þingmenn velti alvarlega fyrir sér þeirri spurningu hvort hér sé um Alþingi Íslendinga að ræða eða Alþingi einhverrar pólitískrar yfirstéttar sem er algerlega úr tengslum við landsmenn.

Frú forseti. Við höfum hlýtt á fjórðu stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur sem setið hefur á Alþingi síðan 1978 eða í 33 ár. Þetta var stefnuræða ríkisstjórnar og stjórnmálamanns sem er algerlega uppiskroppa með raunhæfar lausnir á efnahagsvandanum auk langrar sögu lausna sem virka ekki. Stefnuræða ríkisstjórnar og stjórnmálamanns sem nutu trausts og völdust til ábyrgðar vegna fordæmalausra aðstæðna sem þau hafa ekki haft getu né kjark til að leiða þjóðina út úr. Þess vegna og ekki vegna neins annars erum við enn í sömu sporum og í janúar 2009 þar sem þúsundir manna mótmæla við þinghúsið, mótmæla hruninu, fjármálakerfinu, vanhæfninni og siðlausum stjórnmálum.

Því miður hefur ríkisstjórnin og þeir þingmenn sem hana styðja hafnað því að gera upp hrunið, það hrun sem valdið hefur meira samfélagstjóni en nokkuð annað á Íslandi frá lýðveldisstofnun. Einungis einn ráðherra hrunstjórnarinnar er fyrir landsdómi. Fjármálakerfið hefur verið endurreist á sömu forsendum og fyrir hrun, skuldamál heimilanna eru í sama ólestri, fjöldi hrunþingmanna situr enn á þingi og ótti almennings við framtíðina eykst. Þrátt fyrir kröfu almennings um aukið lýðræði og gríðarleg mótmæli hafa frumvörp um þjóðaratkvæðagreiðslur ekki fengið framgang. Fjármál stjórnmálaflokkanna eru áfram styrkt með framlögum frá lögaðilum og nafnlausum framlögum. Úrræðin í skuldamálum heimilanna eru enn á við handrit eftir Franz Kafka. Bankakerfið afskrifar tugi milljarða til pólitískt tengdra sægreifa og tekur ekki einu sinni kvótann upp í til endursölu. Þingmenn á spena fjármálafyrirtækja sitja enn á þingi og skuldir eins þingmanns Sjálfstæðisflokksins frá því fyrir hrun sem ekki verða greiddar duga fyrir árslaunum verkamanns í rúmlega 500 ár. Blindan á eigið vanhæfi er sláandi.

Frú forseti. Stefnuræðan og þingmálaskráin með þau 192 þingmál sem ríkisstjórnin vill ná fram er því miður að mestu leyti innihaldslaust plagg sé tekið mið af þeim alvarlega vanda sem blasir við. Þar er ekkert — ég endurtek, ekkert um afnám verðtryggingar og ekkert sem máli skiptir fyrir efnahagslífið nema óljóst orðalag um bætt umhverfi fyrir erlenda fjárfesta sem er ekki það brýnasta sem við þurfum á að halda við þessar viðkvæmu aðstæður. Bankar og lánastofnanir eru nefnilega yfirfullar af peningum sem komast ekki til þarfra verka vegna of hás vaxtastigs sem haldið er uppi af ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða annars vegar og Seðlabanka með kolranga stefnu hins vegar. Sanngirni ber þó að gæta því forsætisráðuneytið er með ný upplýsingalög efst á málaskránni sem er mjög brýnt og þarft mál og hæstv. innanríkisráðherra er með frumvörp um persónukjör á dagskrá, að vísu annað árið í röð og ekki fyrr en á vorþingi, en ég skora hér með á hæstv. ráðherra að flýta þessum brýnu lýðræðisumbótum og setja þau strax á dagskrá. Þjóðin treystir ekki Alþingi og Alþingi gerir ekkert í málinu og svo á bara að halda áfram á sömu braut með nýtt löggjafarþing eins og ekkert sé.

Frú forseti. Ég get því miður ekki með góðu móti lýst virðingu minni eða ánægju með Alþingi Íslendinga eða nokkurt það fólk sem hegðar sér eins og ég hef tæpt á. Þetta er hins vegar starfsvettvangur minn og í samræmi við eiðstaf minn að stjórnarskránni mun ég leitast við að sinna starfi mínu. Hluti af því er að halda á lofti þeim stefnumálum sem við þingmenn Hreyfingarinnar vorum kosin út á og eru birtingarmynd þeirrar háværu kröfu um breytingar sem flestallir landsmenn nema þingmenn sjálfir virðast vilja.

Frú forseti. Serimóníurnar í þinginu í dag og síðastliðinn laugardag eru vel skipulagðar og vel varðar af lögum, hefðum og lögreglunni. Því miður er þannig komið fyrir Alþingi að það snýst meira og minna um form en ekki innihald. Pólitísk samtrygging, óheiðarleiki, yfirgangur, óheilindi og vanhæfni er mín upplifun á Alþingi. Ekki alltaf sem betur fer, en allt of oft. Leikreglur dagsins, form, serimóníur og sýndarmennska breyta engu þar um. Keisarinn er nefnilega ekki í neinum fötum, ekki nú frekar en í ævintýrinu forðum. Á Íslandi heitir þetta því fína nafni að vera í stjórnmálum. Þannig stjórnmál eru að mínu mati hins vegar óboðleg og þannig stjórnmálum hafnar Hreyfingin og mun alltaf gera.

Sú gjá sem hefur myndast milli þings og þjóðar hefur breikkað ört undanfarin þrjú ár en í stað þess að brúa þá gjá virðist Alþingi á góðri leið með að steypa sjálfu sér ofan í hana. Það í sjálfu sér yrði ágætt fyrir þjóðina. Hún þarf þá bara að drífa í því að taka frumkvæðið og byrja upp á nýtt og ég sé ekki betur en hún sé tilbúin til þess en það er hins vegar ekki enn æskilegasta leiðin. Vonandi náum við að vinna okkur út úr þessu með betri hætti en svo.

Frú forseti. Í kosningunum vorið 2009 komu 27 nýir þingmenn inn á þing. 23 þeirra fóru beinustu leið í hjólför fjórflokksins og ekkert breyttist. Sú ríkisstjórn sem nú er við völd og sem margir þessara nýju þingmanna styðja hefur svikið öll þau kosningaloforð sem hún gaf. Meðvirknin og firringin heldur samt áfram og alþingismenn hafa því miður misfarið með umboð sitt eina ferðina enn. Það er fullreynt að fjórflokkasamfélagið og skyldleikaræktunin hér á Alþingi getur ekki uppfyllt þær kröfur og skyldur og þá ábyrgð sem löggjafarþing hefur. Það er gengið sér til húðar. Eina leiðin sem fær er er að gefa almenningi kost á að segja álit sitt á þeim stjórnmálum, því stjórnkerfi og stjórnarfari sem ríkt hefur allt of lengi. Eftirlegukindum hrunsins þarf að koma út með kosningum sem fyrst. Þær kosningar ættu þó ekki að verða fyrr en Alþingi hefur komið sér saman um ferli fyrir framgang frumvarps til stjórnskipunarlaga né fyrr en ríkisstjórnin hefur fengið tækifæri enn einu sinni til að leysa úr brýnasta vandamáli efnahagslífsins, skuldum heimilanna. — Góðar stundir.