stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Helstu bráðaaðgerðum hrunsins fer senn að ljúka. Skattahækkunum á venjuleg heimili og fyrirtæki er að mestu lokið og nú sér fyrir endann á helsta niðurskurðinum.
Samkvæmt spám verður hagvöxtur að meðaltali um 3% á ári hér á landi á næstu árum sem er vel yfir meðallagi nágrannaþjóða og atvinnuleysi er lægra en í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Við niðurskurð og skattahækkanir hefur þess verið gætt að dreifa byrðum hrunsins á almenning í hlutfalli við tekjur. Í dag greiðir helmingur landsmanna lægra hlutfall af tekjum sínum í skatt en hann gerði fyrir hrun og lægstu bætur hafa verið hækkaðar verulega. Þetta hefur verið gert samhliða um 140 milljarða viðsnúningi á rekstri ríkisins og ef ekki væri fyrir vaxtakostnað væri ríkissjóður rekinn með 40 milljarða kr. hagnaði á næsta ári.
Nú þarf að marka leiðina fram á við. Hvernig hyggjumst við standast alþjóðlega samkeppni um unga fólkið og hvernig ætlum við að gera fyrirtækjunum kleift að skapa áhugaverð störf og vel launuð? Sumir stjórnmálaflokkar hafa verið næsta fáorðir um langtímastefnu sína í þessum efnum en hafa daðrað við þjóðernishyggju og einangrunarstefnu. Þannig hafa jaðrarnir lengst til vinstri og lengst til hægri fundið flöt til samstarfs í hrifningu sinni á einangrun lands og þjóðar. Jafnaðarmenn hafna þessari leið. Jafnaðarmenn óttast ekki opið samfélag. Jafnaðarmenn vilja samkeppni á sem flestum sviðum enda skilar slíkt hagræðingu í rekstri og lægra verði til neytenda. Jafnaðarmenn sjá samstarf við önnur ríki sem tækifæri, ekki ógnun.
EES-samningurinn færði Íslandi mikil verðmæti og aðild að ESB opnar möguleika á upptöku evru sem lækkar kostnað heimila og fyrirtækja og styrkir atvinnulífið í erlendri samkeppni.
Virðulegi forseti. Nú liggur fyrir rammaáætlun um verndun og nýtingu orkuauðlinda sem getur markað sátt á milli andstæðra sjónarmiða um hvort eigi að virkja eða vernda tiltekin svæði. Landsvirkjun hefur kynnt áætlanir um framkvæmdir í anda rammaáætlunar og verði þær að veruleika er fyrirtækið í stakk búið til að greiða milljarðatugi í arðgreiðslur og tekjuskatt til ríkisins. Það eru umtalsverðar fjárhæðir sem geta nýst til fjölbreyttari uppbyggingar og þar á meðal til umhverfismála. Nýlega hefur nefnd undir forsæti hv. þm. Skúla Helgasonar skilað skýrslu um sókn í grænu hagkerfi og með fjármagni og skynsamlegri orkunýtingu á forsendum sjálfbærrar þróunar er hægt að sækja markvisst fram með grænar áherslur. Það er nefnilega svo, kæru landsmenn, að skynsamlegri nýting orkuauðlinda getur fært okkur mikinn ávinning á sviði umhverfisverndar og þess vegna eigum við ekki að líta á þessi tvö sjónarmið sem andstæð. Græn sókn og sjálfbær nýting orkuauðlinda fer saman.
Fram undan er einnig endurskoðun fiskveiðikerfisins. Við þá vinnu er ekki hægt að horfa fram hjá því að núverandi kvótahafar hafa að miklu leyti keypt kvóta á markaði og þar með lagt út fyrir væntum ávinningi af nýtingu auðlindar. Á hinn bóginn verða útvegsmenn að skilja þá kröfu almennings að fá til sín verulega stóran hluta af þeim umframhagnaði sem auðlindin skilar. Leiðin að sátt er í gegnum tekjurnar af auðlindinni. Fyrirtæki í sjávarútvegi skila hagnaði og af honum greiða þau eðlilegan tekjuskatt. En sá hagnaður sem verður til og er umfram eðlilega ávöxtun fjármagns, þ.e. hagnaður af nýtingu auðlindar, þann hagnað verður þjóðin að fá, stærstan partinn, til sín.
Um leið er mikilvægt að breytingarnar dragi ekki úr þeirri verðmætasköpun sem á sér stað í sjávarútvegi. Pólitísk kantstýring og takmarkanir vinna gegn markmiðum um hámörkun arðsemi. Betra er að hámarka hagnaðinn sem greinin gefur af sér og gefa síðan almenningi verulega hlutdeild í þeirri arðsemi, fá þannig fjármagn til að standa undir nýsköpun og samkeppnishæfu atvinnulífi í hinum dreifðu byggðum landsins.
Virðulegi forseti. Fyrir ungan þingmann hafa verið þó nokkur vonbrigði að upplifa ýmislegt í störfum Alþingis undanfarin tvö ár sem hefur dregið úr virðingu þess og ásýnd. Nú hefur nýtt þing verið sett og um leið gefst þingmönnum tækifæri til að nálgast viðfangsefni sín á nýjum og bættum forsendum. Vonandi tekst það.
Frú forseti og kæru landsmenn. Undanfarin ár hafa reynst okkur erfið og við munum glíma við eftirköst hrunsins í mörg ár til viðbótar en við erum búin með það versta og fram undan er tími uppbyggingar og endurreisnar. Látum ekki neikvæðni og bölsýni verða ráðandi heldur freistum þess að takast á við verkefnin með jákvæðni að vopni. Þannig náum við betri árangri, hér á Alþingi sem annars staðar.