140. löggjafarþing — 2. fundur,  3. okt. 2011.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:50]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Góðir landsmenn. Við Íslendingar búum við kreppuástand, við búum við efnahagskreppu og við búum við stjórnmálakreppu. Vandamálin á efnahagssviðinu og stjórnmálasviðinu tengjast og tvinnast saman með ýmsum hætti en í stuttu máli náum við ekki tökum á þeim fyrri nema okkur takist að leysa þau síðari. Við munum ekki ná tökum á efnahagsmálunum nema við komumst út úr þeirri pólitísku krísu sem einkennt hefur undanfarin ár. Pólitísk krísa, segi ég, stjórnmálakreppa, stjórnarkreppa. Á lausn þessa vanda berum við öll ábyrgð, hvert með sínum hætti og í samræmi við þá stöðu og þau verkefni sem hvert okkar hefur tekið að sér.

Fjárlagafrumvarpinu sem nú liggur fyrir þingi hefur verið lýst sem kreppufjárlögum. Það eru orð að sönnu. Frumvarpið gerir ráð fyrir enn frekari niðurskurði hjá ríkinu og um leið auknum skattahækkunum, bæði beinum og óbeinum, dulbúnum og augljósum. Þessar skatta- og gjaldahækkanir hafa svo aftur víðtæk áhrif. Þær valda m.a. vísitöluhækkunum sem auka skuldir og þyngja greiðslubyrði heimilanna svo eitthvað sé nefnt. Ef þessar gjaldahækkanir verða t.d. til að vísitalan hækki um 1%, sem vel getur gerst, þá má áætla að skuldir heimilanna sem mjög eru í sviðsljósinu í dag hækki við það eitt um 13–14 milljarða kr. Þetta er eitt sem snertir fjárlagafrumvarpið. Raunar eru forsendur frumvarpsins augljóslega þær að við verðum enn um sinn að kljást við mikla efnahagslega erfiðleika. Við erum enn í miðri efnahagskreppu, því miður. Þetta finna heimilin í landinu á hverjum degi, við hver mánaðamót. Þetta finna fyrirtækin og atvinnulífið. Og fjárlagafrumvarpið gefur því miður ekki góð fyrirheit um framhaldið.

Hæstv. fjármálaráðherra hefur lengur en flestir menn talið sig sjá til lands og talar í dag um viðsnúning eins og áður. Vonandi og ég segi vonandi er þetta ekki úr lausu lofti gripið hjá hæstv. fjármálaráðherra. En þau merki sem hann talar um og má lesa út úr fjárlagafrumvarpinu gefa okkur til kynna að gangi þessar spár eftir, sem verða að teljast bjartsýnar, þá komumst við út úr kreppuástandinu hugsanlega á næstu tíu árum. Það er ekki hraðar því miður, hæstv. forseti.

Nú saka áreiðanlega margir mig um bölmóð og svartsýnisraus eins og hv. síðasti ræðumaður gerði en við því er það eitt að segja, við hv. þm. Magnús Orra Schram og aðra, að við getum ekki annað en horfst í augu við staðreyndir. Við getum ekki talað okkur út úr vandanum. Það er alveg sama hvað menn senda út margar fréttatilkynningar, halda marga blaðamannafundi, útbúa margar stefnuáætlanir með fínum og flottum fyrirsögnum og gefa yfirlýsingar um að nú sé þetta allt að koma, ef efndirnar láta á sér standa, ef árangurinn kemur ekki í ljós. Staðan þarf hins vegar ekki að vera svona döpur. Við þurfum ekki að sætta okkur við þetta ástand til frambúðar. Raunsætt mat á hinum efnahagslegu aðstæðum segir okkur einfaldlega að við höfum verk að vinna. Við höfum svo sannarlega verk að vinna og það eru vissulega til leiðir út úr vandanum, auðvitað ekki töfralausnir, engar lausnir sem eru dregnar upp úr hatti og virka þegar í stað, en lausnir engu að síður sem jafnt og þétt geta stuðlað að auknum hagvexti, stórauknum hagvexti sem við þurfum á að halda, fjölgun atvinnutækifæra og betri aðkomu alls almennings. Tækifærin eru víða ef menn vilja og ef menn fái tækifæri til að nýta sér þau.

Mér finnst, hæstv. forseti, blasa við að ef við viljum ná einhverjum árangri í þessum efnum þá þurfum við svo sannarlega að breyta um stjórnarstefnu. Við þurfum að gerbreyta stefnunni. Það má öllum vera ljóst að undir núverandi ríkisstjórn náum við ekki árangri. Reynslan gefur okkur vísbendingar í þá átt. Valdatími þessarar ríkisstjórnar hefur því miður verið tími ótal glataðra tækifæra. Óbreytt ástand er ekki valkostur. Ef núverandi ríkisstjórn og núverandi samsetning á Alþingi býður okkur ekki upp á annað en óbreytt ástand þá er bara eitt að gera. Þá þarf að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Kosningar eru ekki lausn á öllum vanda en þær gætu þó hugsanlega losað okkur út úr þeirri pólitísku pattstöðu sem við nú erum í.