140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[13:40]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra hlý orð í minn garð og félaga minna í fjárlaganefnd. Ég er þess fullviss að eftir hrun fjármálakerfisins og gjaldmiðilsins hefur verið mikið álag á íslenskri stjórnsýslu og hafa komið til mörg ný verkefni, þar á meðal skuldastýring, því að skuldir ríkissjóðs voru orðnar það litlar að þetta var orðin ansi umfangslítil starfsemi sem óx síðan margfalt.

Ég fagna því að heyra, og vissi það svo sem fyrir, að fjármálaráðherra leggur á þetta mikla áherslu og það verður mikilvægt fyrir nefndina að fá ítarlegar upplýsingar um hvernig þessum málum er háttað í ráðuneytinu, enda getum við sagt sem svo að nær fimmta hver skattkróna fer í að greiða vaxtakostnað. En svo koma að sjálfsögðu vaxtatekjur á móti þannig að það er ekki alslæmt. En það er mjög mikilvægt að við horfum á þennan kostnaðarlið því að þó að við höfum takmörkuð áhrif á hann er full ástæða til að reyna eftir fremsta megni að draga úr þeim útgjöldum sem vaxtagjöld leggja á herðar ríkissjóði.