fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Vegna þess að orð eru mín rengd ætla ég að lesa orðrétt upp úr svari ríkisendurskoðanda. Það er dagsett 7. júlí 2011.
Hér segir, með leyfi forseta:
„Í fyrra barst Ríkisendurskoðun erindi frá yður þar sem óskað er eftir að stofnunin aflaði upplýsinga um þær nefndir og starfshópa sem starfa á vegum forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins.“
Ég óskaði líka upplýsinga um hvort nefndirnar og starfshóparnir fengju greitt fyrir störf sín.
Hér stendur:
Ríkisfjármálanefnd. Starfsmenn ráðuneytisins fá ekki greitt en fulltrúar Alþingis hafa fengið greitt.
Og hér stendur: (Forseti hringir.)
„Nefndarmenn, formaður og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis.“
Ef rengja á þessi orð mín hér (Forseti hringir.) þarf að fara vel yfir starfshætti Ríkisendurskoðunar vegna þess að þetta eru staðfestar upplýsingar frá (Forseti hringir.) Ríkisendurskoðun.