fjárlög 2012.
Frú forseti. Ég hef ekki gagnrýnt alla einstaka liði þessa fjárlagafrumvarps. Sá einstaki liður sem ég hef gagnrýnt hér í dag er sá niðurskurður sem er hjá Landspítalanum og að auki sá niðurskurður sem er hjá heilbrigðisstofnunum úti á landi. Forstjóri Landspítalans hefur lýst því yfir ítrekað í fjölmiðlum að þar verði ekki frekar skorið niður nema með því að loka deildum og leggja niður þjónustu.
Það kom fram í umræðunni í fyrra að sú deild sem heppilegast væri að leggja niður út frá sparnaðarsjónarmiðinu væri hjartadeildin sem þýddi einfaldlega að þá þyrfti að flytja Íslendinga til útlanda í hjartaaðgerðir. Ég veit ekki hver niðurstaðan úr því verður en eftir því sem ég best veit hefur núverandi forstjóri Landspítala Íslands unnið þrekvirki í þeirri stofnun frá því að hann tók við. Ég hugsa til þess með hryllingi ef þessi liður í fjárlagafrumvarpinu nær fram að ganga. Það verður mannauðsflótti úr Landspítalanum, bæði lækna og hjúkrunarfræðinga, og það næst ekki að byggja mannauðinn upp að nýju. Það næst einfaldlega ekki að draga lækna og hjúkrunarfræðinga aftur hingað til lands nema með umtalsvert hærri launakjörum en bjóðast í dag. Þarna er að mínu mati verið að vinna skaða sem verður óbætanlegur ef hann nær fram að ganga og ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir því í fjárlaganefnd að það verði horfið frá þessum niðurskurði.
Niðurskurður á öðrum sviðum skiptir ekki eins miklu máli að mínu viti, alls ekki, en niðurskurður eins og boðaður er hér í heilbrigðismálum er grundvallaratriði sem við megum helst ekki láta ná fram að ganga. Við verðum að gera allt sem við getum til að reyna að lagfæra hlutina hvað það varðar.