fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Ég hef ákveðinn skilning á þeim forsendum sem eru í frumvarpinu vegna þess, eins og hæstv. ráðherra benti réttilega á, að taka ber mið af þeirri spá sem liggur fyrir í júlí, en því má hins vegar velta fyrir sér hvort þurfi að endurskoða þetta ferli eitthvað þar sem við vitum að það er að koma ný spá sem getur dregið upp allt aðra mynd sem mun þá breyta því frumvarpi sem verið er að ræða.
Ég vil taka fram af því að ég gleymdi að nefna það áðan, frú forseti, að ég er sammála þeirri umræðu sem var hér varðandi rammann, að þegar stofnanir fá fjárhagsrammann ber þeim vitanlega að vinna eftir honum hvort sem það eru útgjöld eða tekjur. Það kann hins vegar á einhverjum tímapunkti að þurfa að jafna einhvers staðar á milli og þá þarf að finna leiðir til þess.
Ég vil líka segja að þó svo einhver okkar kunni að gagnrýna þennan skatt á fjármálafyrirtæki eða hafa einhverjar efasemdir um hann er það ekki yfirlýsing um að fjármálafyrirtækin eigi ekki að leggja eitthvað í púkkið. Það er frekar spurning um hvernig það er gert. Ég velti því upp áðan hvort hægt sé að gera það með einhverjum hætti, að ná í hagnað með einhverjum hætti og láta hann ganga t.d. í að færa niður skuldir heimila eða eitthvað þess háttar.
Ég vara alla vega við því að við förum í leiðangur sem eykur kostnað viðskiptavinanna þannig að fjármálastofnanirnar muni velta kostnaðinum út í þjónustugjöld, út í hærri iðgjöld af tryggingum og þess háttar því að þá erum við í raun bara að skattleggja einstaklingana, viðskiptavini þessara stofnana, ekki þær sjálfar. Þetta er vitanlega eitthvað sem við þekkjum vel á Alþingi og annars staðar í umræðum um skattamál hver það er sem á endanum borgar, það eru alltaf þær vangaveltur. En eins og þetta er lagt upp hér, og það þarfnast kannski einhverra skýringa við, sýnist mér að þetta muni enda hjá viðskiptavinunum og þá held ég að betra sé að ganga hreint til verks og hækka skatta á þessa einstaklinga almennt í stað þess að fara einhverjar krókaleiðir. Alla vega vil ég beina því til þeirra sem eru að teikna upp þessi mál að skoða hvort hægt sé að girða fyrir þetta með einhverju móti.