fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Skattar lenda oftast á almenningi, það er örugglega alveg hárrétt. Þar af leiðandi hlýtur að vera mikil pressa á okkur í því umhverfi sem við erum í í dag að leita leiða til að svo verði ekki ef við ætlum að leggja á nýja skatta hvað sem þeir heita og hvernig sem þeir eru innheimtir.
Ég held að í grunninn sé meginmarkmiðið og mikilvægasta markmiðið að fjölga störfum, fjölga þeim sem greiða hina venjubundnu skatta til samfélagsins. Með því að fjölga störfunum og fjölga þeim sem hafa atvinnu munum við síður þurfa að fara í sértækar aðgerðir eða sérstaka skatta eins og þennan sem hugsanlega mun enda hvort sem er hjá einstaklingunum.
Eins og ég nefndi í ræðu minni áðan sakna ég þess að við skulum ekki vera komin lengra frá hruninu í að byggja upp atvinnulífið en við erum í dag, að við séum ekki búnir að auka meira og stækka meira þann stofn sem greiðir skatta af launum sínum og þess háttar. Ég sakna þess og það er eitthvað sem verður að taka á.
Ég nefndi áðan nokkra þætti sem eru jákvæðir og neikvæðir í þessu frumvarpi. Það er líka mikilvægt að halda því til haga að víða þar sem eru opinber störf úti á landsbyggðinni, t.d. hjá sýslumönnum eða öðrum opinberum skrifstofum, þá skiptir hvert einasta starf (Gripið fram í.) máli. Það skiptir kannski jafnmiklu máli og 100 eða 200 störf á höfuðborgarsvæðinu. Við megum ekki gera lítið úr því þó að það séu bara tvö störf hjá einhverjum sýslumanni eða opinberri stofnun úti á landi, eins og hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson er sammála mér um, við getum ekki látið það viðgangast að slík störf þurrkist út. Þar af leiðandi, frú forseti, verðum við að hafa fyrirvara á þeim tillögum (Forseti hringir.) sem hér eru og liggja til grundvallar því að fækka opinberum störfum.