fjárlög 2012.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans. Vegna orða þingmannsins um þær leiðir sem voru mögulegar og stóðu hinu opinbera til boða á árunum 2009–2010, langar mig að rifja það upp að Sjálfstæðisflokkurinn lagði til að farin yrði sú leið að taka þann hluta skattpeninga sem lægju inni í lífeyrissjóðunum og ríkið sannarlega átti, og hefði ekki skert útgreiðslu úr sjóðunum til lífeyrisþega með nokkrum hætti, og ríkið færði til sín þessar tekjur í ljósi þeirra erfiðu aðstæðna sem voru uppi og þeirra erfiðu aðstæðna sem íslensk fyrirtæki voru í. Hv. þingmaður gerði þetta einmitt að umtalsefni og hversu óheppilegt það var að þurfa að hækka skatta. Mig langar að varpa því fram hvort hv. þingmaður geti tekið undir með mér að við höfum misst þar af heilmiklu tækifæri til þess að koma í veg fyrir skattahækkanirnar, skjóta styrkari stoðum undir atvinnulífið og þar með breikka skattstofnana og þar með stæðum við heldur ekki frammi fyrir jafndjúpum efnahagsvanda og við gerum núna.