140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:29]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Við óvenjulegar aðstæður þarf oft að fara óvenjulegar leiðir og ég var einn af þeim sem töluðu fyrir því að skoða þessa leið. Ég hef í minni pólitík reynt að gagnrýna jafnt eigin flokk sem aðra flokka og ég hef jafnframt reynt að hrósa öðrum flokkum jafnmikið og ég hef hrósað mínum eigin flokki.

Ég skoðaði þær efnahagsleiðir sem Sjálfstæðisflokkurinn boðaði á sínum tíma og talaði um þær í pontu Alþingis og galt ekki varhuga við þeim öllum heldur taldi sumar þeirra færar, þar á meðal þá leiðina sem hv. þm. Illugi Gunnarsson nefnir hér, svokallaðan innskatt ef svo má að orði komast, hvað lífeyrisgreiðslurnar varðar. Ég taldi á sínum tíma að hún kæmi til greina. Sumir sögðu að það væri álíka og að pissa í skóinn sinn, það kæmi ríkinu í koll síðar meir, en á þessum tíma þurfti að nota allar leiðir og ég tel það fullbillegt, svo ég fái með leyfi hæstv. forseta að sletta ögn lítið, að ríkið reyni einvörðungu að breikka skattstofna en ekki sækja meiri tekjuauka og líta til niðurskurðar. Við þurftum á öllum þessum leiðum að halda til að rétta þjóðarbúið við og ég tek heils hugar undir með hæstv. fjármálaráðherra sem sagði í inngangsorðum sínum við umræðuna fyrr í dag að það var mjög happadrjúgt að fara strax mjög róttækt í þessar aðgerðir. Ef til vill þurftum við á enn fleiri leiðum að halda og ég útiloka alls ekki þá leið sem hv. þm. Illugi Gunnarsson nefnir, að sækja fjármuni í lífeyriskerfið með þessum hætti. Það hefði e.t.v. gert það að verkum að við hefðum þurft að skera minna niður í velferðarþjónustunni sem er kannski viðkvæmasta þjónustan sem við þurfum að sinna á hverjum tíma.