fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsögu hans í dag fyrir fjárlagafrumvarpinu og full ástæða er til að fagna þeim árangri sem náðst hefur í ríkisfjármálunum á erfiðum tímum. Það vita auðvitað allir að þar hefur orðið gríðarlega mikill viðsnúningur á skömmum tíma. Auðvitað hefur mörgum þótt að þar væri hart sótt í skattheimtu á köflum og í niðurskurði útgjalda sömuleiðis og að aðrir þættir í samfélaginu hafi liðið fyrir það en að því er að hyggja að það er auðvitað gert með almannahag að leiðarljósi því að ef ríkissjóður er ekki í lagi er ekkert í lagi á Íslandi. Fjármál ríkisins eru einfaldlega undirstaða þess að við getum byggt hér upp. Þau leggja grunninn að lánshæfismati ríkissjóðs sem aftur er grunnurinn að lánshæfi alls atvinnulífs í landinu, fjármálakerfisins og þar með heimilanna, og þannig forsenda fyrir því að hér megi afla lánsfjár ekki aðeins fyrir ríkissjóð heldur fyrir alla landsmenn, fyrir fjárfestingar til framtíðarinnar á kjörum sem eru viðráðanleg.
Það er sérstaklega ánægjulegt að náðst hafi svo mikill árangur að í því frumvarpi sem hér er lagt fram er ekki gert ráð fyrir almennum skattahækkunum á fólk og fyrirtæki í landinu. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að hafa nú lokið stærsta hlutanum af tekjuöflunaraðgerðum, þeim erfiðu skattahækkunum sem hefur þurft að ráðast í. Það svið er að mestu leyti tæmt og sem betur fer er hægt að hlífa venjulegum fyrirtækjum og fólki í landinu við hækkunum á komandi árum.
Við munum í efnahags- og viðskiptanefnd fara á næstu vikum yfir tekjuhliðina í fjárlagafrumvarpinu. Ég vil nú þegar við 1. umr. leiðrétta nokkurn misskilning sem gætt hefur í umfjöllun um nokkra þætti sem snúa að tekjuöfluninni. Þar er í fyrsta lagi sett fram gagnrýni á fyrirætlanir um sérstakan launaskatt á fjármálafyrirtæki og skylda aðila. Þar er látið að því liggja að hér sé verið að skattleggja vinnu og það muni draga úr atvinnustarfsemi á þessum sviðum í samfélaginu. Slíkur málflutningur er algerlega af og frá. Hér er ekki um að ræða sérstakar álögur á fjármálafyrirtæki, fjarri því. Staðreyndin er sú að bankastofnanirnar í landinu eru ólíkt nær öllum öðrum atvinnufyrirtækjum á Íslandi undanþegnar virðisaukaskatti. Þær taka sem sagt ekki þátt í því tekjuöflunarkerfi ríkisins, virðisaukaskattinum, sem heldur uppi allri velferð í landinu. Þess vegna er það til að mynda hjá frændum okkar í Danmörku að menn hafa haft sérstakan launaskatt sem bankarnir borga fyrir það að sleppa við virðisaukaskattinn. Það er ígildi virðisaukaskatts og fyrst og fremst til þess að bankarnir séu jafnsettir öðrum atvinnufyrirtækjum í landinu en njóti ekki sérstakra forréttinda í skattalegu tilliti eins og er auðvitað með því að undanþiggja þá virðisaukaskatti ólíkt öðrum atvinnugreinum. Auðvitað geta menn rætt það hvort það ætti frekar að láta þá sæta virðisaukaskatti eins og aðra en það er hins vegar nokkuð almenn og alþjóðleg regla að fjármálakerfin séu undanþegin þessu og því hentugra bæði fyrir ríkissjóð og fyrir bankakerfið að haga þessu með þessum hætti.
Í öðru lagi hefur verið gagnrýnt að hér sé dregið úr heimildum fólks til að leggja inn á séreignarlífeyrissjóð úr 4% á launum í 2% án þess að greiða skatt af því sem inn er greitt. Er það nú skynsamleg gagnrýni? Við lifum einhverja mestu samdráttartíma á síðari áratugum í íslensku samfélagi og eins og komið hefur fram hjá hverjum einasta af ræðumönnum stjórnarandstöðunnar í dag er gríðarlega brýnt að örva hjól atvinnulífsins og fá fram fjárfestingar og skapa vinnu í landinu. Er það tími þar sem ríkið á með sérstökum skattaívilnunum að hvetja til þess að fólk noti ekki launin sín til að kaupa vörur eða fjárfesta heldur að leggja þau inn á verðtryggða reikninga í bönkum eins og nú er gert í stórum stíl? Nei, það er beinlínis óskynsamlegt. Það er sjálfsagt og eðlilegt að draga úr viðbótarsparnaði eins og þessum á þeim tímum sem við lifum á og má heita furðulegt að gagnrýna það með þeim hætti sem gert hefur verið.
Vegna þeirrar umræðu sem hér varð um úttektir úr séreignarsjóðum og þess að einkaneyslan í landinu sé byggð á ósjálfbærum forsendum er um leið rétt að halda því til haga að skuldir heimilanna hafa ekki verið að aukast stórum skrefum undanfarna mánuði og missiri og því tiltölulega litlar forsendur fyrir því að kalla það neyslustig sem við nú búum við ósjálfbært svo nokkru nemi.
Í þriðja lagi hefur verið gagnrýnt að hér sé um að ræða stórfelldar hækkanir á vörum eins og áfengi og tóbaki og öðru slíku. Það gagnrýna sömu aðilar og segja í hinni setningunni að farið sé fram með verulegum niðurskurði. Þetta er ákaflega óheiðarleg umræða. Vegna þess að við erum við 1. umr. að fjalla um forsendur fjárlaga þurfum við líka að fjalla um forsendur fjárlagaumræðu. Þær hækkanir sem hér er verið að vísa til eru verðlagshækkanir, að gjöld á þessar vörur sem ég nefndi, svo sem eins og áfengi og tóbak, fylgi verðlagi í landinu. Nú má út af fyrir sig kalla það hækkanir og við getum tekið þá umræðu, en þeir sem kalla það hækkanir geta þá ekki kallað það lækkanir á útgjöldum eða niðurskurð þegar útgjöldin fylgja ekki vísitölu af því að menn verða að beita sömu aðferðunum beggja vegna. Annaðhvort er það óbreytt ástand að láta gjöld eins og gjöld á áfengi og tóbak fylgja verðlagi og útgjöld fylgja verðlagi eða að það eru hækkanir að hækka hvort heldur um sig að krónutölu. Kjósi menn að kalla það hækkanir að hækka gjöld í samræmi við verðlag geta þeir ekki kallað það niðurskurð þegar framlög til Landspítalans hækka um 2.600 millj. milli ára að krónutölu með vísan til þess að þær hafi lækkað að raungildi. Annaðhvort eru menn að miða við fast verðlag eða ekki.
Hér hefur síðan spunnist nokkur umræða um það sem mun auðvitað ráða úrslitum um framgang þessa frumvarps á næsta ári sem eru fjárfestingar í landinu og hagvaxtarþróun. Það er að vísu ranghermi sem haft hefur verið uppi í umræðunni að 1,5% hagvöxtur sé nauðsynlegur til að mæta þeim sem koma nýir út á vinnumarkað. Því miður er ekki hægt að sýna fram á hið beina orsakasamband lengur milli hagvaxtarins og atvinnusköpunarinnar og má jafnvel hafa áhyggjur af því að það geti þurft meiri hagvöxt, því að við þekkjum það í ýmsum hagkerfum á undanförnum árum að menn hafa þar í ríkari mæli verið að sjá dæmi um hagvöxt án atvinnusköpunar þannig að þau augljósu orsakatengsl og sjálfsögðu eru sannarlega ekki fyrir hendi.
Ég vara hins vegar við því að menn hlusti mikið eftir því að alþingismenn standi í ræðustól á þeim viðsjárverðu tímum sem eru um heim allan og fjalli um það að stjórnmálamenn geti lofað meiri vexti en 3% á landsframleiðslu. Stjórnmálamenn sem geta lofað meira en 3% vexti á landsframleiðslu væru trúlega ekki að störfum hér heldur hefðu fyrir löngu síðan verið kallaðir á hinn alþjóðlega vettvang til að takast á við þau miklu og erfiðu verkefni sem þar er við að glíma. Það er einfaldlega þannig að það eru viðsjár í efnahagsmálum heimsins og við þurfum að hafa áhyggjur af því að ýmsar þær forsendur sem við erum að vinna með gætu breyst og þær gætu breyst til hins verri vegar. Og það að við séum nú að horfa upp á kannski tæplega 2% vöxt í ár og vonast eftir 2–3% vexti á næsta ári og þar næsta ári er kannski raunsætt en fullyrðingar um það að við eigum þar umtalsvert (Forseti hringir.) meiri vöxt að sækja held ég að endurspegli ekki þá ábyrgð sem menn þurfa að sýna í umræðum um ríkisfjármál á þessum tíma.