140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[17:21]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Hv. þingmaður. Alltaf læt ég snúa á mig, nú er ég kominn í andsvör. [Hlátur í þingsal.] Ég er algjörlega sammála þingmanninum um að annað hvort talar maður um nafnstærðir eða raunstærðir. Ég er á því að við eigum að tala um raunstærðir og hef tamið mér að gera það í allri minni orðræðu. Ástæðan fyrir því að við þurfum að tala um raunstærðir en ekki nafnstærðir er sú að undirliggjandi þættir ríkisrekstrar sem eru að mestu leyti launagjöld, fylgja yfirleitt verðbólgu eða réttara sagt eru yfirleitt rúmlega yfir verðbólgu. Það er erfitt að átta sig á því hvernig hlutirnir falla saman ef ekki er talað í raunstærðum.

Ég get verið hjartanlega sammála hv. þingmanni um að það megi ekki rugla saman nafnstærðum og raunstærðum. Ég vil þó segja við hv. þingmann að það er nú ekki alvarlegasti ruglingurinn á þessu þingi.