140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[17:45]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans og vil taka undir áhyggjur hans af þróun skulda ríkissjóðs til 2015 eins og þeim er lýst í frumvarpinu. Ég tel að það gefi fullt tilefni til þess að hér í þinginu við þinglega meðferð sé farið yfir þær áætlanir og kannað með hvaða hætti megi bregðast við því.

Ég vil kannski, áður en ég ber upp meginspurningu mína, beina því til hv. þingmanns hvort honum finnist taka því að tala um skerðingu lífeyrisréttinda og minni ávöxtun lífeyrissjóða við það að greiddur verði 10% launaskattur af þeim tiltölulega litla hópi sem starfar á vegum lífeyrissjóðanna, hvort ekki sé verið að gera úlfalda úr mýflugu sem óþarfi sé að þvælast með í alvarlegri og mikilvægri umræðu.

Meginefnið sem ég vildi leita eftir við hv. þingmann eru orð hans um veiðigjaldið. Nú er það rétt hjá hv. þingmanni að gert er ráð fyrir því að útgerðin eigi að skila meiri tekjum í ríkissjóð á næsta ári. Ég er forvitinn um afstöðu hv. þingmanns, af því hann hefur mikla innsýn í sjávarútveginn og sömuleiðis í lögmál hagfræðinnar, hvort hann telji að verið sé að krefja menn um ósanngjarnt eða óeðlilegt endurgjald í sjóði ríkisins fyrir afnotin af auðlindinni miðað við þá afkomu sem er af greininni í dag.