fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Engum sem skoðar ríkisfjármálin af sanngirni tekst að mæla því mót að ríkisstjórnin, undir forustu hæstv. fjármálaráðherra, hefur náð verulegum árangri í því að minnka fjárlagahallann úr 216 milljörðum árið 2008 í 123 milljarða á þessu ári og stefnir í rúma 42 milljarða á árinu 2011 með kúrsinn settan á að ná hallanum undir 18 milljarða á næsta ári samkvæmt því frumvarpi sem hér er til umræðu.
Náðst hefur verulegur árangur í því að koma skikki á ríkisfjármálin en ekki einungis það, heldur hefur jafnframt tekist að skipta byrðunum með sanngjarnari hætti en gert var á árunum fyrir hrun og auka þar með jöfnuð í samfélaginu. Því til staðfestingar má nefna að frá árinu 2008 hefur tekjuskattur einstaklinga lækkað hjá 60–70% gjaldenda, eða öllum þeim sem eru með árstekjur undir 5–6 millj. kr. Það er sérstakt fagnaðarefni að skattar einstaklinga sem hlutfall af landsframleiðslu munu á næsta ári lækka samkvæmt fjárlagafrumvarpinu vegna nýrra tenginga persónuafsláttar við verðlagsþróun, en það mun hafa þau áhrif að ráðstöfunartekjur hinna tekjulægri munu hlutfallslega hækka um tæplega 2% á næsta ári. Við sjáum því fram á það að heildarskattbyrði einstaklinga fari lækkandi á næsta ári miðað við yfirstandandi ár sem yrðu talsverð tíðindi í sjálfu sér.
Það er líka athyglisvert, í ljósi þeirrar miklu umræðu sem verið hefur hjá tilteknum aðilum um að þessi árangur í að ná fjárlagahallanum niður sé til kominn vegna skattpíningar, að 57% af því aðhaldi sem ríkissjóður hefur þurft að ná frá hruni er ekki til komið vegna skattahækkana heldur vegna niðurskurðar útgjalda. Einungis 43% vegna aukinna tekna.
Í þessum viðamiklu aðgerðum hefur tekist að verja velferðarkerfið að mestu og það er athyglisverð staðreynd og mikilvæg að þrátt fyrir niðurskurð útgjalda eru framlög til velferðarmála hærri nú en þau voru í góðæristíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Ég vil sömuleiðis nefna að á vettvangi þingsins hefur verið gripið til löngu tímabærra úrbóta í fjárlagavinnunni undir forustu fyrrverandi formanns fjárlaganefndar, Oddnýjar Harðardóttur, sem tók hina svokölluðu safnliði til gagngerrar endurskoðunar með þeim árangri að nú heyrir það sögunni til að þingmenn skammti úr hnefa opinber framlög til hinna og þessara verkefna út um allt land, safnastarfs, tónleika, bókaútgáfu, myndlistarsýninga o.s.frv., án þess að fyrir liggi nokkurt faglegt mat á gildi umsókna, hvað þá virkt eftirlit með ráðstöfun þessara opinberu fjármuna.
Frá árinu 2010 hefur stofnunum ríkisins fækkað um 30 og ráðuneytum úr 12 í 10. Ég ligg hins vegar ekki á þeirri skoðun minni að ég tel að þarna þurfi að ganga talsvert lengra og vil brýna þingheim til að stíga ákveðin skref á þessum vetri í því að sameina sýslumannsembætti, fækka lögregluembættum o.s.frv. Ég tel reyndar að fullt tilefni sé til að fara kerfisbundið í gegnum verkefni Stjórnarráðsins og fella niður eða fresta verkefnum sem ekki eru forgangsverkefni í þeirri mikilvægu vegferð sem við erum á og þurfum að vera þessa mánuðina og missirin í að endurreisa samfélagið eftir bankahrun.
Nú á þriðja ári þessarar ríkisstjórnar er krafa um hagræðingu mun vægari en á undanförnum árum. Það er almenn 3% hagræðingarkrafa í stað 10% kröfu í kjölfar hrunsins og 1,5% á velferðar- og menntamál. Við verðum hins vegar að viðurkenna að það er ekkert gamanmál fyrir lykilsvið almannaþjónustunnar, eins og menntakerfið og velferðarþjónustuna, að þurfa enn einn ganginn að skera niður eftir mikla hagræðingu á undanförnum árum. Það verður mjög erfitt víða. Ég vil í því sambandi vekja sérstaka athygli á stöðu háskólanna og framhaldsskólanna í landinu. Að vonum hefur mikið verið fjallað um stöðu heilbrigðisþjónustunnar, en ég tel ekki síður mikilvægt að skoða vandlega áhrif niðurskurðarins á menntakerfið og tryggja að við gerum ekki lykilstofnunum menntakerfisins ókleift að sinna hlutverki sínu með sóma.
Ég held til dæmis að við þurfum að skoða vandlega í vetur hvernig hægt er að treysta stöðu Háskóla Íslands til framtíðar og við verðum að leita allra leiða til að draga úr offramboði náms á tilteknum námsbrautum og auka verkaskiptingu milli háskólanna þannig að við verjum fjárveitingum með skynsamlegri hætti í stað þess að smyrja þunnt alls staðar.
Það er til dæmis áhyggjuefni að hér á landi hefur um langt árabil verið fylgt allt annarri forgangsröðun fjárveitinga til menntamála en við sjáum í löndunum í kringum okkur. Þetta birtist í því að við verjum hlutfallslega mestu fé í grunnskólamenntun hér á landi, en minnstu í háskólamenntun. Þetta stangast algerlega á við það sem við þekkjum í öðrum ríkjum OECD þar sem er algengt að 50% meira fé sé varið til menntunar hvers háskólanema en hvers grunnskólanema. Ísland er eina landið innan OECD þar sem hærri fjármunum er varið í menntun grunnskólanema en háskólanema og ef litið er á útgjöld á hvern háskólanema sem hlutfall af þjóðarframleiðslu á mann eru þau lægst á Íslandi af öllum löndum OECD.
Ég tel því að við þurfum að gefa upp á nýtt. Við þurfum að efla framhaldsskólastigið og sérstaklega háskólastigið með því að stærri hluti fjárveitinga hins opinbera til menntamála gangi til þessara skólastiga, en jafnframt þarf að taka til í háskólakerfinu. Það þarf að leita leiða til sameiningar stofnana þar sem það er hagkvæmt og draga kerfisbundið úr offramboði náms og sóun sem því fylgir.
Enn er það svo að lögfræði- og viðskiptafræði eru kenndar í fjórum háskólum í þessu landi. Við höfum einfaldlega ekki efni á því að verja takmörkuðum fjármunum skattborgaranna á þennan veg á sama tíma og Háskóli Íslands fær ekkert greitt með 900 nemendum vegna fjárskorts. Við þurfum að stíga ákveðin skref í því að gegnumlýsa ráðstöfun fjármuna í háskólageiranum á þessum vetri með það að markmiði að nýta fjármunina betur, finna leiðir til að opna fyrir aukna samvinnu og jafnvel sameiningu opinberu háskólanna, en líka skoða hvernig auka megi samvinnu opinberu háskólanna og einkareknu skólanna. Þar eru vissulega rekstrarform og fjármögnunarleiðir ákveðinn þröskuldur í veginum, en það er hins vegar ekki náttúrulögmál heldur mannanna verk sem vel er hægt að endurskoða.
Ég vil einnig beina þeim skilaboðum til hv. fjárlaganefndar að skoða sérstaklega í menningargeiranum aðbúnað kvikmyndagerðar í landinu sem hefur sýnt mikla grósku undanfarin ár, en mátti hins vegar þola mikinn niðurskurð árið 2009 sem ekki hefur gengið til baka. Í fjárlagagerð það ár, fyrir árið 2010, var Kvikmyndasjóður skorinn niður um tæpan þriðjung, langt umfram niðurskurð til annarra aðila í menningargeiranum. Nú er svo komið að gróskan í þessum geira er að stöðvast og aðgengi okkar að fjármagni úr erlendum sjóðum kann að stöðvast algjörlega ef við náum ekki að snúa þessari þróun við strax á næsta ári. Ég vona því að hv. fjárlaganefnd taki málefni Kvikmyndasjóðs til sérstakrar skoðunar fyrir 2. umr. fjárlaga, því þarna er um gjaldeyrisskapandi starfsemi að ræða. Það er engin kvikmynd framleidd á landinu nema með því að hver króna sem sett er í Kvikmyndasjóð af íslenska ríkinu margfaldist í samstarfi við erlenda sjóði. En núna eru blikur á lofti og líkur á því að vegna niðurskurðar sé jafnvel ólíklegt að við getum sótt í erlenda sjóði til að fjármagna íslenska kvikmyndagerð á komandi missirum.
Að lokum vil ég minna á að út er komin skýrsla nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins. Þar eru kynntar tillögur sem geta myndað grundvöll aðgerðaáætlunar um umhverfisvæna atvinnustarfsemi. Það er mikilvægt að gert sé ráð fyrir fjárveitingum til 1. áfanga þess verkefnis í fjárlögum næsta árs, enda er mikil þörf fyrir að auka fjölbreytnina í atvinnulífi okkar og örva atvinnustarfsemina, til dæmis með hagrænum hvötum og tilfærslum gjalda og fjárveitinga í þágu grænnar atvinnusköpunar.