140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[18:32]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Tölum um hlutina eins og þeir eru. Hv. þingmaður vill hlífa sér og okkur öllum við nokkrum niðurskurði útgjalda og um leið liggur það fyrir að hv. þingmaður og flokkur hans er andvígur því að lagt verði meira á tekjuhlið fjárlaganna, þ.e. að skattheimta verði aukin frá því sem ætlað er og jafnvel heldur í hina áttina að þeir leggi til að dregið verði úr henni.

Fyrir liggur að fjárlagafrumvarpið byggir á spá um verulegan hagvöxt á næsta ári. Engar umtalsverðar fjárfestingar í nýjum atvinnufyrirtækjum munu skapa tekjur á næsta ári. Ekki er gert ráð fyrir því í frumvarpinu enda er ferli slíkra fjárfestinga mun tímafrekara en svo að það gæti skilað árangri á næsta ári jafnvel þó að í slíkt yrði ráðist nú, umhverfismat og annar undirbúningur gerir það einfaldlega að verkum að slíkar tekjur mundu aldrei skila sér fyrr en á árinu 2013 eða síðar.

Það virðist blasa við að hv. þingmaður telji rétt við núverandi ástand í ríkisfjármálum og efnahagsmálum þjóðarinnar að draga úr aðhaldskröfu í ríkisfjármálum og auka hallarekstur á ríkissjóði um það sem hann ekki treystir sér til að skera niður eða hagræða.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort þetta sé réttur skilningur, hversu mikið hann telji þá rétt að auka hallann á ríkissjóði eða hvort hann hafi einhver önnur úrræði sem mér hafi yfirsést í ræðu hans.