fjárlög 2012.
Frú forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að staða ríkissjóðs var ágæt þegar að hruninu kom og hrein staða jákvæð, enda kallaði ég það oft á árunum á undan eina ljósið í myrkrinu. Á sama tíma og allar aðrar máttarstoðir samfélagsins söfnuðu hratt skuldum, atvinnulífið, heimilin og sveitarfélögin, stóð ríkissjóður einn vel. Ég segi líka eins og ég sagði þá: Skárra væri það nú, því að ríkissjóður naut á árunum þar á undan gríðarlegra tekna af þenslunni í samfélaginu, af viðskiptahalla og miklum innflutningi og seldi verðmætar eignir fyrir á annað hundrað milljarða króna. Hefðu menn séð mikilvægi þess að standa enn ábyrgar að ríkisfjármálunum á þeim árum og lækka ekki skatta í þenslunni hefði ríkissjóður auðvitað átt 150–200 milljörðum meiri innstæður í Seðlabankanum og/eða t.d. borgað um helminginn inn á framtíðarskuldbindingar B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Þar fóru fram hagstjórnarmistök þó að það sé að sjálfsögðu rétt að þessi sterka staða ríkissjóðs hjálpaði okkur.
Í öðru lagi um hagvöxt þá bið ég hv. þm. Illuga Gunnarsson að ganga ekki í umræðunni út frá síðustu bráðabirgðaspá Seðlabankans frá því í ágúst eða september sem heilagri tölu, að búið sé að ganga frá því að ekki verði nema 1,6% hagvöxtur hér á landi á næsta ári. Ég tel það allt of svartsýnt og ekki í samræmi við aðrar spár. Bæði AGS og Hagstofan eru með mun hærri spár, en það sem maður sér þegar maður ber þær saman er að Seðlabankinn framhleður hagvöxtinn á þessu ári, dregur úr honum á næsta ári og eykur hann svo aftur 2013. Meðaltal hagvaxtar árin 2011–2013 í þessum þremur, fjórum spám sem mest er byggjandi á er svipað þegar upp er staðið, um 2,5%–2,8%, en það dreifist dálítið misjafnt innan tímabilsins. Ástæðan er held ég sú að Seðlabankinn reiknar með því að kraftur einkaneyslunnar verði enn meiri á þessu ári en á því næsta og dregur svo úr fjárfestingaráætluninni og færir inn á árið 2013.