fjárlög 2012.
Frú forseti. Það er rétt sem hv. þm. Pétur H. Blöndal sagði, þetta er viðmiðun sem er gerð á lífeyrissjóðina þannig að menn taki tillit til þess hver aldursdreifingin er og gæti jafnræðis á milli sjóðfélaga. Þetta er einmitt heila málið. Við verðum að skila meiri hagvexti en t.d. þær þjóðir þar sem fólki er að fækka. Það er bara þannig. Ef við gerum það ekki hefur það afleiðingar, það hefur þær afleiðingar að fólkið sem er að koma inn á vinnumarkaðinn leitar annað. Ef ekki eru störf hér reyna menn að fara eitthvert annað, eitthvert þar sem störf bjóðast. Þannig gerist það og þannig hefur það verið að gerast, því miður, undanfarin ár. Þess vegna er þetta kapphlaup. Þetta er kapphlaup við tímann um að ná fjárfestingunni upp.
Það gengur ekki að segja: Við ætlum okkur að fara rólega í þetta, svona hægt og rólega og sjá hvernig gengur. Þetta eru ekki þannig aðstæður núna. Þetta eru ekki þær aðstæður, að mínu mati, þar sem menn geta komist upp með það að hér sé ríkisstjórn sem hangir á eins manns meiri hluta, að það geti einn þingmaður sem styður stjórnina stöðvað nánast hvaða verkefni sem er með því að hóta því að styðja ekki stjórnina lengur. Auðvitað hljóta menn t.d. að leiða hugann að þeim frábæru kostum sem þjóðin á, virkjunarkostum í neðri hluta Þjórsár sem eru mjög góðir kostir þegar horft er til umhverfisáhrifa og efnahagslega, en þegar liggur fyrir að núverandi ríkisstjórn er þannig samansett eða meiri hlutinn í þinginu er mjög ólíklegt að á valdatíma ríkisstjórnarinnar, ef hún situr hér til 2013, verði farið í þessar framkvæmdir bara vegna þessa.
Það eru fleiri svona mál, því miður, sem hægt er að benda á þar sem innbyrðis sundurlyndi ríkisstjórnarinnar gerir það að verkum að það tefur fyrir fjárfestingum. Þegar verið er að tefja fyrir fjárfestingum er verið að tefja fyrir atvinnu, (Forseti hringir.) og það er verið að tefja fyrir lífskjörum. Þess vegna þarf þessi (Forseti hringir.) ríkisstjórn að fara frá, frú forseti.