140. löggjafarþing — 4. fundur,  5. okt. 2011.

staðgöngumæðrun.

4. mál
[16:05]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Að hafa þetta bannað hér, sagði þingmaðurinn — ég vil minna á að þetta er til dæmis bannað á Norðurlöndunum. Við sækjum löggjöf okkar mjög til Norðurlandanna. Það er sem betur fer ágætiskafli í þingsályktunartillögunni þar sem farið er yfir rök fyrir því að við Íslendingar eigum að ganga lengra en Norðurlandabúar. En ég vil líka minna á að það er ekki allt fallegt í henni veröld, því miður.

Á sama tíma og verið er að leggja til, eins og ég kom inn á áðan í ræðu minni, að skera niður til tæknifrjóvgana eru fóstureyðingar nánast ókeypis ef ekki alveg ókeypis. Það er verið að búa til fullt af börnum í heiminum og það er mjög mikið til af munaðarlausum börnum út um allan heim en íslensk löggjöf um ættleiðingu er orðin svo þröng að varla er gerlegt að ættleiða barn eins og farið var yfir í fyrirspurnum og andsvörum áðan.

Ég hefði því talið að hæstv. innanríkisráðherra hefði átt að taka sig til, þegar þetta mál kom fram á síðasta þingi, og athuga með rýmkun á ættleiðingarreglum. Auðvitað vorkenni ég fólki sem á ekki börn, ég veit að það er það sem allir þrá innst inni að geta haldið á sínu eigin barni. En eftir þá umræðu sem fór af stað, og sérstaklega eftir umfjöllun ríkissjónvarpsins um þessi mál eins og þau eru á Indlandi, þegar þessi tillaga var til umræðu nú fyrir þar síðustu jól, varð ég mjög slegin. Þar var sýnt fram á að þetta væri hreinlega orðinn iðnaður. Það megum við ekki láta gerast hér nái þetta mál fram að ganga.

Ég kom með þá ábendingu í síðustu umræðu hvort ekki ætti að binda staðgöngumæðrun, þetta sem lagt er til, við íslenskan ríkisborgararétt þannig að ekki væri hægt að fara á milli landa, að einhverjir aðilar kæmu hingað og gætu ráðið til sín staðgöngumóður í velgjörðarskyni. Ég sé að það er komið inn í tillöguna þannig að ég fagna því. Ég fagna því að búið er að bæta þessa þingsályktunartillögu frá því á síðasta þingi og ég vona að við náum skynsamlegri lendingu í þessum málum. (Forseti hringir.) En málið er viðkvæmt úti í samfélaginu og mörgum siðferðisspurningum ósvarað.