140. löggjafarþing — 4. fundur,  5. okt. 2011.

staðgöngumæðrun.

4. mál
[16:45]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Það er mjög frískandi að fá að heyra andstæð sjónarmið, það hefur skort á það í umræðunni, það eru flestir hlynntir þessu og eru meira að segja meðflutningsmenn.

Það er eitt lítið atriði sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um, sem er þó mjög veigamikið og mjög heimspekilegt, en það er spurningin um rétt barna til að þekkja uppruna sinn. Nú er það þannig að við erum eiginlega að fjalla um það hvort börn verði til eða ekki og þá vil ég spyrja hv. þingmann: Telur hann betra fyrir barn að vita uppruna sinn og vera ekki til eða vita ekki uppruna sinn og vera til? Mundi hv. þingmaður, ef hann stæði frammi fyrir þessu vali, vilja vera ekki til og vita uppruna sinn eða vera til og vita ekki uppruna sinn?