staðgöngumæðrun.
Frú forseti. Þetta verður sífellt áhugaverðara. Sem sagt, í dag er staðgöngumæðrun bönnuð. Það eru mörg börn sem ekki verða til þess vegna. Hver er réttur þeirra sem ekki urðu til? Þetta er heimspekilegt.
Önnur spurning: Nú hef ég ættleitt barn svo að ég verði dálítið persónulegur og ég sé engan mun á þeim börnum og öðrum börnum sem ég á sjálfur, ekki nokkurn einasta. Og það merkilega er, menn þekkja heldur ekki uppruna þessara barna. Og mundi hv. þingmaður með hliðsjón af barnasáttmálanum banna ættleiðingar þegar uppruninn er ekki þekktur? Ættum við þá að útiloka öll börn í Afríku sem hugsanlega væri hægt að ættleiða vegna þess að uppruni þeirra er ekki þekktur?