staðgöngumæðrun.
Hæstv. forseti. Ég vil fyrir það fyrsta þakka fyrir að þetta mál sé á dagskrá í dag og svo snemma, þskj. 4 og 4. mál. Ég ætla ekki að eyða stuttum tíma mínum í það hvers vegna það er, það gerðist á síðasta þingi og varð samkomulag um það. Þess vegna fagna ég því að þetta sé komið til umræðu þó að ég sakni þess að fleiri sem ef til vill eru andvígir málinu eða með efasemdir taki þátt í umræðum. Eitt af því sem átti að slá okkur út af laginu með á síðasta þingi var einmitt að málið væri órætt. Nú er tækifæri til að ræða það.
Ég ætla á þeim stutta tíma sem ég hef að segja frá því hvernig ég fékk áhuga á málinu. Ég get sagt það í fullri hreinskilni að ég hafði ekki hugmynd um um hvað það snerist í byrjun, þegar það var fyrst flutt. Ég ljáði ekki máls á því að verða flutningsmaður — ef mér hefur þá verið boðið það, ég hef ekki veitt því athygli. Þingsályktunartillagan var flutt á síðasta þingi án þess að ég væri í þingsal eða tæki eftir því.
Ég sat hins vegar í heilbrigðisnefnd þegar fulltrúar komu til að ræða þessi mál. Þá kviknaði áhugi minn og hann kviknaði kannski út frá, eins og hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir gerði svo ágætlega að umtalsefni áðan, barnaláni fólks og þeirri gleði sem það gefur manni að geta átt börn, ala þau upp; og kem ég kannski að því betur hér á eftir ef tími verður til. Ég heillaðist algerlega af þeim málflutningi og varð stuðningsmaður þessa máls fyrir framgöngu þeirra sem komu á fund nefndarinnar.
Ég heillaðist enn þá meira af þessu máli og taldi að við ættum að stíga þetta skref eftir að hafa séð myndina frá Indlandi. Ég vil ekki eiga þátt í því að fólk þurfi að fara frá Íslandi til að fá þessa þjónustu. Ég vil frekar taka hana heim undir ströngum skilyrðum sem hér eru sett fram. Það var eitt af þeim atriðum, þessi mynd í sjónvarpinu, sem sneri mér algerlega.
Ég veit núna, eftir að ég fór að kafa ofan í málið og kynna mér það og lesa mér til um það, að fólk er að fara til landa sem leyfa þetta eða þar sem eftirlit er minna og fá þessa þjónustu, kemur svo heim til Íslands. Vonandi tekst það í öllum tilfellum en stundum tekst það ekki og þá fylgir því mikill harmur. Ég get líka sagt að málflutningur og greinargerðir sem settar hafa verið fram — þó að margar séu neikvæðar út frá siðfræðilegu sjónarhorni, þá hugsa ég til þess sem sagt var í nefndinni. Það voru ekki allir siðfræðingar sem mæltu með því að konur sem búa í lesbísku sambandi mættu ganga með börn, margir siðfræðipostular gengu gegn því.
Maður heyrir sögur af fólki sem er orðið það angistarfullt, út af aldri eða þránni eftir að geta eignast barn, að svona dæmi verða til — hjón búa saman og geta ekki átt barn af læknisfræðilegum ástæðum, og slíkar ástæður eru fjölmargar, ég ætla ekki að tala um það. En þau geta farið þessa leið samkvæmt íslenskum lögum: Þau geta skilið. Konan getur tekið upp samband við aðra konu. Þær gera með sér samkomulag um að konan gangi með barn og það barn fæðist og er afhent hinni fráskildu móður, og hún getur tekið upp samband við manninn sinn á ný. Þetta er krókaleið sem hægt er að fara og ég vil ekki hugsa til þess að þetta sé gert, þetta sé það neyðarúrræði sem fólk þarf að nýta sér til að eignast börn, til að uppfylla þessa þrá, að fara þessa krókaleið. Þá vil ég frekar leyfa þetta hér.
Það var eitt atriði sem snerti mig líka. Fulltrúar komu til heilbrigðisnefndar og sögðu, með leyfi forseta, þetta er næstum því orðrétt í gögnum mínum: Það er ekkert sérstaklega skemmtilegt að þurfa að fara niður á Alþingi, á fund hjá nefnd og útskýra það fyrir alþingismönnum að okkur langi til að eignast barn. En við getum það bara ekki og við þurfum þá að fara þessa leið. Þetta var eitt af þeim atriðum sem gerði það að verkum að ég fékk þann mikla áhuga sem ég hef á þessu máli og tala fyrir því nú.
Ég get líka nefnt söguna sem hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir sagði áðan, um hvernig staðgöngumæðrun hefur átt sér stað á Íslandi. Þegar ég fór að hugsa málið þá hugsa ég að ég viti um tilvik á litlum stöðum þar sem staðgöngumæðrun átti sér stað fyrr á síðustu öld. Sagan sem hv. þingmaður sagði áðan, um konuna sem gaf frá sér tvö börn vegna þess að hún átti nóg, var falleg. En ekki er víst að það gangi þannig í dag. Tækninni hefur fleygt fram og þess vegna er möguleiki að gera þetta svona.
Ég blæs á það þegar sagt er að við séum þau fyrstu á Norðurlöndunum og að enginn hafi gert þetta á Norðurlöndunum fyrr, ég blæs á það. Það er stundum kostur að vera ekki nema 315 þúsund manns, að þjóðfélagið sé ekki stærra en það. Þetta segi ég meðal annars eftir langt samtal mitt við Reyni Tómas Geirsson, prófessor, yfirlækni og forstöðumann fræða- og kvennasviðs LSH, eins og ég held að það heiti, þar sem hann lýsti meðal annars fámenninu og sagði að fagnefnd færi í gegnum hvert og eitt atriði, ræddi við einstaklingana og úrskurðaði um það ef svo má að orði komast. Þetta er kostur fámennisins. Þetta mundi algjörlega tryggja það, sem mér heyrist margir hafa áhyggjur af, að staðgöngumæðrun yrði alltaf í velgjörðarskyni en ekki hagnaðarskyni eins og hér var talað um áðan, sem enginn er að tala um.
Virðulegi forseti. Ég þurfti ekki meiri röksemdir en málflutning þeirra sem komu á fund heilbrigðisnefndar — ég man ekki hvort það er einu sinni, tvisvar eða þrisvar, það skiptir ekki máli — til að fá áhuga á þessu máli og vera stuðningsmaður þess jafnvel þó að ýmsir í minni fjölskyldu, sem ég ræði oft við mál dagsins og pólitík og hef oft tekið tillit til, séu ekki sammála mér í því.
Þetta vildi ég, virðulegi forseti, setja fram við þessa fyrri umræðu um tillögu til þingsályktunar um staðgöngumæðrun sem 23 þingmenn flytja. Ég bið um að málið fái að ganga til velferðarnefndar, sem ég á sæti í. Við munum vinna málið vel eins og gert var í síðustu nefnd þó að það hafi verið gert á síðustu stigum þess og síðan í septemberstubbnum. Málið féll þá á tímaskorti sem ég var ósáttur við þá en get sagt að ég er algerlega sáttur við þau málalok sem urðu á septemberstubbnum. Hingað er málið komið núna, því hefur verið vísað til velferðarnefndar og því lofað að það verði afgreitt þaðan á þessu hausti áður en desemberannir byrja við fjárlög, að málið komi til efnislegrar umræðu, seinni umræðu á Alþingi og til atkvæðagreiðslu.
Ég hlustaði á rök samflokkskonu minnar hv. þm. Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur áðan. Ég trúi ekki öðru en að við getum orðið sátt við að vinna þessa vinnu og leggja málið fram. Það er grundvallaratriði í mínum huga að það sé haft eins og hér er, ég ljæ ekki máls á eftirgjöf hvað það varðar, að fela velferðarráðherra að skipa starfshóp sem fer í að semja frumvarp. Við mig var sagt á síðasta þingi: Getið þið þingmenn ekki samið frumvarp og lagt það fram? Nei, það getum við ekki. Við höfum ekki þekkingu til þess eða fjármagn. Það verður velferðarráðuneytið að gera með þeim sérfræðingum sem það kallar til. Þetta er eðlileg leið. Síðan kemur frumvarpið til Alþingis og verður rætt. Þá getum við rætt um kosti og galla þess, hvort eitthvað vanti í það eða hvort þetta er bara yfir höfuð ekki hægt.
Virðulegi forseti. Talandi um barnalán, og ég á því að fagna, ég á líka barnabörn, þá vildi ég óska þess að allir gætu haft það eins og ég: Ég var að koma úr flugi og hljóp niður til að skipta um föt til að fara niður á Alþingi, þá sagði barnabarnið mitt, 14 mánaða gamalt: Hæ afi; og vinkaði mér og kyssti mig bless. Ég á enga ósk heitari en allir geti fengið að upplifa þetta.