staðgöngumæðrun.
Frú forseti. Það kemur ítrekað í ljós hvað þetta er flókið mál og það er mjög óþægilegt að ætla að stíga þetta stóra skref með öll þessi spurningarmerki allt í kringum okkur. Af því að við eigum von á annarri umræðu um þetta mál þá skal ég koma með gögn sem styðja mál mitt, alveg sjálfsagt.
Það er eitt sem mig langar til að segja: Það kemur ítrekað fram í máli þeirra sem styðja þessa tillögu að af því að fólk er að fara á svig við íslensk lög í útlöndum eigi að bregðast við með því að setja íslensk lög og breyta þeim. Mér finnst það mjög varasöm leið og ég geld varhuga við því.