140. löggjafarþing — 4. fundur,  5. okt. 2011.

staðgöngumæðrun.

4. mál
[17:54]
Horfa

Þór Saari (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur andsvarið. Ég tel að þessi þrjú atriði gangi mjög langt í þá veru og skýri mjög vel ætlan flutningsmanna í þessu máli og það er hið besta mál. Eins og ég sagði áðan hef ég ekki enn þá myndað mér endanlega skoðun með eða á móti málinu. Mér finnst einmitt þessi þrjú atriði mjög mikilvæg og þyrfti að skoða þau rækilega í skýrslu sem gerð yrði um málið og því yrði þá rækilega velt upp hvernig þau yrðu útfærð nákvæmlega og hvort þetta væru nægilega mörg atriði sem þyrfti að skoða. Það er kannski málið. Ástæðan fyrir því að ég legg til að þessi leið verði farin er líka sú að ég tel að það liggi ekki mjög mikið á með málið. Það skiptir ekki öllu máli hvort við tökum okkur ár til viðbótar í skýrslugerð eða ekki.

Ég held líka að það sé óheppilegt fyrir umræðuna í samfélaginu og fyrir málið í heild sinni að menn flýti sér of mikið með það. Þetta er bara það mikið tilfinningamál fyrir mjög marga. Þetta er ekki neitt sérstakt tilfinningamál fyrir mig en ég heyri það bara á umræðunni í þingsal og utan þingsalar að þetta er mjög mikið tilfinningamál fyrir marga. Þess vegna er æskilegt að nálgast það með hægð en ekki þó þannig að það komi ekki neitt út úr því. Ég er alveg sammála því að mál eins og þetta þarf að afgreiða ef mögulegt er. Það er alls ekki ætlan mín eða ásetningur með því að hvetja til hægari ferðar en frumvarpið gerir ráð fyrir að málið fái ekki afgreiðslu. Ég er alveg á því að það eigi að afgreiða það.