140. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2011.

Efnahagsleg áhrif af rekstri og arðsemi Landsvirkjunar til ársins 2035.

[14:32]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Sterk staða Landsvirkjunar og stórbrotin framtíðarsýn er vissulega ánægjuefni á þeim krossgötum sem við erum á í íslensku atvinnulífi og það er sátt í sjónmáli á milli þeirra öfgakenndu sjónarmiða sem hafa oft tekist á í þessum sal og víða annars staðar hvað varðar orkunýtinguna. Stefnan sem við ræðum hérna í dag markar ákveðin þáttaskil. Hún er á forsendum fjölbreyttrar orkunýtingar sem hvílir á sjálfbærri þróun í anda fram kominna tillagna t.d. um græna hagkerfið sem hv. þm. Skúli Helgason og fleiri fluttu um daginn. Dæmi um það, dæmi um breyttar og ánægjulegar og skynsamlegar áherslur í orkunýtingu eru t.d. hugmyndir um sölu á umframorku um sæstreng, fram komnar áætlanir og útboð á kísilverksmiðju núna t.d. í Helguvík, gagnaver sem er farið á fleygiferð uppi á Vallarheiðinni og áherslur um að selja ylræktinni og grænmetisframleiðslunni raforku á sanngjarnara verði. Um það er nokkuð þverpólitísk sátt sem við þurfum að beita okkur fyrir að skili sér alla leið, því að hæstv. ráðherra hefur ekki náð því máli eins langt og efni stóðu til. Þetta mun allt skila okkur miklum ábata og fjölbreyttum og vellaunuðum störfum.

Grundvöllur þeirrar sáttar sem er í sjónmáli í orkunýtingarmálum er framkomin rammaáætlun eins og hæstv. iðnaðarráðherra nefndi áðan. Þar er fram komið sáttaskjal sem tekur á deilum á milli verndunarsinna og nýtingarsinna af því langflestir eru auðvitað þarna mitt á milli. Hins vegar er mikilvægt að Landsvirkjun noti afl sitt og sterka stöðu til að brúa bil vandræða t.d. Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku, mál sem eru í gerðardómi og fjármögnun sem er í uppnámi, og gangi inn í verkefni sem eru hálfköruð eins og t.d. álver Norðuráls í Helguvík og brúi þar tímabundna erfiðleika (Forseti hringir.) við orkunýtingu.