tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands.
Virðulegi forseti. Rétt er að ítreka að það er algerlega mín skoðun að það hafi verið mistök að fara út í þessa vinnu eins og gert var og það hafi ekki verið hugsað til enda. Ég hygg að ég eigi eftir að hafa rétt fyrir mér í því enda sjáum við núna þingið víkja í raun undan þeim mikla ákafa sem var þegar þetta mál var sett í gang.
Jafnframt finnst mér pínulítið ósanngjarnt af hv. þingmanni að snúa því yfir á mig að svara hverju eigi að breyta í stjórnarskránni vegna þess að það er ekki ég sem stend fyrir þeirri umræðu. Það sem ég segi aftur á móti er að við eigum að laga þá hluti sem miður fara í stjórnarskránni eða réttara sagt, við eigum að endurbæta stjórnarskrána ef upp koma hlutir sem við sjáum að betur þurfi að fara. Ég verð eiginlega að svara hv. þingmanni með því að ég ætla ekki að nefna tiltekna hluti sem ég vil að breytt sé í stjórnarskránni vegna þess að ég stend ekki fyrir þeirri umræðu að menn eigi að fara út í gerbreytingu á stjórnarskránni. (Gripið fram í: Afstaða.) Ef ég hefði staðið fyrir þeirri umræðu væri ég tilbúinn til að svara því nákvæmlega hvaða atriðum ég vildi breyta.
Annað mál. Þeir sem hæst hafa talað um að breyta stjórnarskrá lýðveldisins, vanvirða margir hverjir stjórnarskrána hvað mest eða réttara sagt, umgangast hana ekki af virðingu af því leytinu til að þeir virðast ekki skilja það sem stendur í henni, t.d. eins og eignarréttarkaflann. (Gripið fram í.) Eignarréttarkaflinn í núverandi stjórnarskrá (Forseti hringir.) virðist fara fyrir ofan garð og neðan hjá því fólki.