störf þingsins.
Frú forseti. Það hefur áður komið fram í umræðum um þetta mál að hæstv. utanríkisráðherra ræddi málið á vettvangi utanríkismálanefndar þegar til stóð að taka ákvörðun á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og sömuleiðis þegar til stóð að taka ákvörðun á vettvangi Atlantshafsbandalagsins. Ég tel að það hafi verið rétt að koma með það mál inn í utanríkismálanefnd á þeim tíma og ég tel að það mál hafi utanríkispólitískt verið þannig vaxið að það hafi fallið undir ákvæði þingskapa um samráð við utanríkismálanefnd. Það er mín afstaða í þessu máli.
Þegar síðan var tekin ákvörðun nýlega um framlengingu á því, ákvörðun sem þingmaðurinn vísar til, tel ég að hún hafi verið framhald á þeirri ákvörðun sem þegar hafi verið tekin og geri ekki athugasemdir við þann framgangsmáta hæstv. utanríkisráðherra.
Það er hins vegar alveg ljóst að afstaða okkar í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði gagnvart þessu máli hefur komið fram bæði í utanríkismálanefnd og í ríkisstjórn með sérstökum bókunum þar að lútandi á báðum þessum stöðum. Hv. þingmanni er ljóst hver afstaða okkar er í þessu efni og hún hefur einnig komið fram í máli mínu og fleiri þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í umræðum um þetta mál á síðasta þingi. Ég tel að ég hafi svarað fyrirspurn hv. þingmanns sérstaklega.
Ég tel hins vegar einnig mikilvægt að leiða hugann að því hvernig við stöndum að málum af þessum toga og ég vek athygli á því að í tillögum stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá er tillaga um að í stjórnarskrá verði bundið að Ísland geti ekki verið þátttakandi í hernaðaraðgerðum af neinum toga öðruvísi en að samþykki Alþingis liggi fyrir Ég tel að það væri gott skref að stíga og styð þá hugsun sem þar er á bak við og þætti fróðlegt að vita hvort þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins gerir það einnig. Sömuleiðis tel ég af þessu tilefni og ýmsum öðrum, m.a. vegna þess að nú stendur til að fara í vinnu við mótun þjóðaröryggisstefnu, að þjóðin taki afstöðu til þess í þjóðaratkvæðagreiðslu (Forseti hringir.) hvort hún vilji að við séum áfram aðilar að NATO eða ekki og þætti fróðlegt að vita hvort þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins mundi styðja slíka tillögu.