140. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2011.

störf þingsins.

[15:33]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Hv. þm. Lilja Mósesdóttir beinir til mín spurningu varðandi fækkun starfa kvenna vegna áætlaðs niðurskurðar í fjárlagafrumvarpinu 2012. Nú skal ég svara því til að fjárlaganefnd hefur ekki haft tækifæri til þess að afla sér upplýsinga um áhrif á fækkun starfa af niðurskurðinum, [Kliður í þingsal.] en á þeim skamma tíma sem ég hafði til að undirbúa mig til að svara hv. þingmanni … Má ég biðja frú forseta um þögn hér í salinn á meðan ég tala?

Ég kynnti mér tölur sem ég gat komist í fljótlega. Vil ég fyrst segja þetta, frú forseti. Með hruni töpuðust um 14 þús. störf af íslenskum vinnumarkaði og oft hafa heyrst nefndar m.a. af hálfu ASÍ mun hærri tölur og allt að 22 þús. Ég ætla að hafa eftir þá tölu sem hv. iðnaðarráðherra miðar við, sem er um 14 þús. störf.

Á tímabilinu 2008–2010, sem er það tímabil sem ég hef tölur um, hefur ríkisstarfsmönnum í BSRB, KÍ og BHM fækkað um 430. Þar af hafa 229 stöðugildi kvenna horfið. Ég er ekki að gera lítið úr þessari fækkun starfa, enda er hvert skipti sem einhver missir atvinnuna alvarlegt. Það segir sig sjálft að í hagkerfi sem hefur misst 14 þús. störf eru færri til tekjuöflunar. Það hlýtur að hafa áhrif á umsvif ríkisins og fjölda starfsmanna. Ég vil leyfa mér að fullyrða að 430 störf, þó hvert og eitt sé þungbært, sé ótrúlega góður árangur og sýni að ríkisstjórnin hafi beitt mjög markvissri forgangsröðun í niðurskurði sínum.