forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu. Nokkrir flutningsmenn er að þessu máli, 1. flutningsmaður er sú er hér stendur en aðrir flutningsmenn eru hv. þingmenn Róbert Marshall, Birgir Ármannsson, Birkir Jón Jónsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Kristján L. Möller og Sigurður Ingi Jóhannsson. Þingmenn þriggja flokka flytja þetta mál, þ.e. Framsóknarflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks en ekki þingmenn frá Vinstri grænum né Hreyfingunni. Ég vil samt taka það fram, og kannski nægir að fara aðeins betur yfir það í lokin, að hæstv. innanríkisráðherra Ögmundur Jónasson sem er á þingi fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð, hefur látið vinna frumvarp sem er í þessum anda og kynnti það m.a. á blaðamannafundi fyrir ekki mjög löngu síðan í tengslum við starfsemi sem sneri að ákveðnum glæpagengjum á Íslandi. Mér skilst að hæstv. ráðherra hafi lagt það frumvarp fyrir þingflokka á vordögum en það kom ekki inn í þingið. Það er svipaðs eðlis og þetta mál og er á lista mála sem hæstv. innanríkisráðherra hyggst flytja á þinginu í haust eða á vorþingi, bráðlega. Það má því kannski segja að miklu breiðari samstaða sé að myndast og pólitísk samstaða að aukast um að klára það að heimila lögreglunni að nýta aðferðir eins og lögreglan annars staðar á Norðurlöndum hefur til að varna því að hér verði framdir skipulagðir glæpir af ákveðnum toga.
Virðulegur forseti. Ég ætla að fara almennt yfir það út á hvað þetta mál gengur. Tillögugreinin hljóðar eins og hér segir, með leyfi virðulegs forseta:
„Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að vinna og leggja fyrir Alþingi frumvarp sem veiti lögreglunni sambærilegar heimildir og lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur til að rannsaka og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða gegn skipulagðri glæpastarfsemi (forvirkar rannsóknarheimildir).“
Tillagan er að íslenska lögreglan fái sambærilegar heimildir og lögreglan annars staðar á Norðurlöndunum hefur til að rannsaka og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Reyndar tíðkast þetta ekki bara annars staðar á Norðurlöndunum og þykir sjálfsagt, heldur nánast í öllum Evrópuríkjum að ég held, og þó víðar væri leitað.
Í greinargerðinni kemur fram að sama mál var lagt fram á síðasta þingi en tiltölulega seint og ekki náðist ekki að mæla fyrir því. Þar af leiðandi fór málið ekki til nefndar eða í umsagnarferli þannig að segja má að núna sé mælt fyrir málinu í fyrsta sinn þó að það sé lagt fram í annað sinn.
Eins og við þekkjum breytist ýmislegt í samfélagi okkar eins og gengur og gerist og þar á meðal umfang og eðli skipulagðrar glæpastarfsemi. Hún er gríðarlega breytt frá því sem áður var og starfsemi lögreglunnar þarf að sjálfsögðu að taka mið af þeirri þróun. Þá ratar glæpastarfsemi sem á sér stað í nágrannaríkjum okkar einnig til Íslands fyrr eða síðar og mörg dæmi eru því til staðfestingar. Nefna má mansal en fyrir fáum árum var fjarstæðukennt að það mundi rata til Íslands. Það voru ekki margir sem trúðu því. Það eru önnur dæmi um alvarlega og skipulagða glæpastarfsemi sem hefur borist hingað frá nágrannaríkjum okkar og að einhverju leyti sprottið upp hér á landi. Ég nefndi mansal, ég vil líka nefna fíkniefnainnflutning, aukin umsvif skipulagðra glæpagengja og hryðjuverkaógn. Vegna aukinnar hörku og útsmoginna aðferða sem eru notaðar við skipulagða glæpastarfsemi hafa nágrannaríkin okkar og fleiri ríki gripið til aukinna heimilda til lögreglu til að sporna við henni. Í þessu felst að lögreglan í öðrum löndum hefur fengið, og fengi hér ef við samþykkjum þetta, heimild til að safna upplýsingum um einstaklinga eða lögaðila þótt ekki liggi fyrir grunur um tiltekið afmarkað afbrot sem hefur verið framið. Rannsókn fer þá fram áður en brot er framið, markmiðið er að koma í veg fyrir brot. Hins vegar felur þetta ekki í sér að hægt sé að rannsaka allt sem mönnum dettur í hug þá og þá stundina, nánast af handahófi, alls ekki. Gagnrýnendur þessarar hugmyndafræði segja oft að þetta sé allt of opið. Það er alls ekki þannig, virðulegur forseti. Slíkar rannsóknar mundu beinast að atferli sem talið væri ógna almenningi, öryggi ríkisins og sjálfstæði þess, þ.e. það þarf að vera alvarlegt mál á ferðinni sem menn óttast. Í nágrannaríkjum okkar er slíkum heimildum alls ekki beitt nema mjög mikil ástæða sé til og sérstakar eftirlitsstofnanir hafa eftirlit með því að þeim sé ekki misbeitt.
Lögreglan í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Danmörku telur þessar heimildir hafa verið ómetanlegar í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þeir hafa nefnt sérstaklega mansal, fíkniefnainnflutning og hryðjuverkaógn sem hið helsta og það má kannski minna á að nýlega kom danska og sænska lögreglan í veg fyrir fyrirhuguð fjöldamorð á starfsfólki Jyllandsposten, að þeirra sögn vegna svona rannsóknarvinnu. Hún kom í veg fyrir mikinn glæp. Það er þó ekki alltaf hægt þótt menn hafi yfir slíkum heimildum að ráða. Ég vil nefna annan mikinn glæp sem var framinn í sumar, 22. júlí í Noregi þar sem maður að nafni Anders Breivik myrti fjölda manns, 77 manns bæði í Ósló og í Útey, en ekki náðist að hindra það, því miður, þrátt fyrir að norska lögreglan hefði þessar heimildir. Stundum tekst að hindra glæpi en alls ekki alltaf, þótt menn hafi heimildirnar. Þetta sýnir kannski hvað menn geta stundum verið berskjaldaðir gagnvart skipulagðri glæpastarfsemi og erfitt að verjast glæpastarfsemi þar sem mönnum dettur virkilega í hug að gera svona hluti. En að minnsta kosti er hægt að sanna að svona heimildir hafa talsvert oft komið í veg fyrir fjöldamorð og líka í veg fyrir mansal, fíkniefnainnflutning og aðra slíka glæpastarfsemi þannig að það er full ástæða til að veita slíkar heimildir og eiginlega fáránlegt ef Íslendingar ætla ekki að veita lögreglu sinni sambærilegar heimildir og lögreglan hefur annars staðar á Norðurlöndunum. Þá værum við virkilega að fljóta sofandi að feigðarósi í þessum málaflokki.
Hins vegar er algerlega ljóst að ákveðin varúðarsjónarmið þurfa að vera á lofti um hvernig beita eigi þessum heimildum. Til að gæta allrar varúðar er rétt að mjög skýrt eftirlit sé haft með beitingu þeirra og það gæti verið í höndum eftirlitsnefndar sem Alþingi kysi eða sérstakrar deildar innan dómstóls, nema hvort tveggja sé. Þetta þarf þingið að skoða. Það er svolítið misjafnt hvernig þetta er gert í öðrum löndum en að minnsta kosti er alveg á hreinu að koma þarf á ströngu aðhaldskerfi gagnvart beitingu heimildanna. Það eru hins vegar engin rök fyrir því að lögreglan á Íslandi hafi minni eða þrengri heimildir en lögreglan annars staðar á Norðurlöndunum. Lögreglan hefur ítrekað bent á að þessar heimildir skorti. Þær ábendingar hafa komið fram í skýrslum sem unnar eru á vegum ríkislögreglustjóra, í skýrslum frá júní 2008, febrúar 2009 og mars 2010. Þær heita Mat ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum. Skýrslan frá 2010 er einmitt fylgiskjal með þessari tillögu. Ég vil líka nefna að fleiri aðilar en lögreglan hafa bent á að þessar heimildir vanti, svo sem Ríkisendurskoðun en hún gaf út skýrslu í nóvember 2007 sem bar heitið Ráðstafanir gegn innflutningi ólöglegra fíkniefna — stjórnsýsluúttekt en þar segir, með leyfi virðulegs forseta:
„Svigrúm yfirvalda til að stunda sértæka eftirgrennslan er takmarkað ef þau hafa ekki heimildir til að beita svokölluðum forvirkum rannsóknaraðferðum (e. proactive investigation). Hafi yfirvöld slíkar heimildir mega þau fylgjast með og safna upplýsingum um einstaklinga jafnvel þótt ekki liggi fyrir rökstuddur grunur um brot. Erlendis eru slíkar heimildir yfirleitt bundnar við tilteknar löggæslustofnanir sem háðar eru sérstöku eftirliti.“
Ríkisendurskoðun bendir líka á að auðveldara væri að eiga við ólöglegan innflutning ef þessar heimildir væru til staðar. Tveir fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherrar hafa líka komið að þessu. Ég vil nefna Björn Bjarnason sem á sínum tíma færði rök fyrir því að við yrðum að veita lögreglunni þessar heimildir ásamt ströngu eftirlitskerfi með beitingu þeirra. Ég vil líka nefna að á síðasta ári fól Ragna Árnadóttir, þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra, réttarfarsnefnd að vinna tillögur að frumvarpi um forvirkar rannsóknarheimildir. Hún færði rök fyrir því af hverju hún gerði þetta. Það var vegna frétta og upplýsinga sem hún fékk sem hæstv. dómsmálaráðherra um stöðu mála. Ég ætla að vitna í hana, með leyfi virðulegs forseta. Hún segir í Fréttablaðinu 16. ágúst 2010:
„Sjálf hef ég til þessa verið mikil efasemdamanneskja og talið að það ætti fremur að halda að sér höndum í þessum efnum heldur en hitt. En eftir að hafa fengið ákveðnar greiningar, upplýsingar og gögn, meðal annars um skipulagða glæpastarfsemi hér á landi, tel ég mér ekki stætt á öðru en að bregðast við.“
Hún undirstrikar að forvirkum rannsóknarheimildum verði að fylgja skýrt eftirlit og það geti verið í höndum þingnefndar eða sérstakrar deildar innan dómstóls, nema hvort tveggja sé. Einnig bendir hún á að í aðgerðaáætlun gegn mansali sem var samþykkt á Alþingi vorið 2009, séu beinlínis áform um hvort lögreglan eigi að fá þessar heimildir til að stemma stigu við mansali. Hún fjallar um að mansal hafi verið fjarlægt okkur en tveir hæstaréttardómar hafi samt fallið um einstaklinga þar sem var dæmt fyrir slík brot.
Fjölmargir aðilar hafa þannig látið sig þessi mál skipta upp á síðkastið og löngu tímabært að við tökum á þeim og klárum þau. Ég vil líka nefna að lögreglan á Íslandi er í samstarfi við lögregluna á öðrum Norðurlöndum og fleiri löndum og til að það samstarf sé eðlilegt er mjög óeðlilegt að ekki séu sambærilegar heimildir hér á landi, þannig að þessu þarf að kippa í liðinn.
Það má líka segja og allir sjá það, að afbrotamenn geta nú ferðast hindrunarlítið milli landa og gera það. Ákveðin hætta er á því að þeir leiti þangað sem viðbúnaður lögreglu er lakari og jafnvel vægari refsingar en í öðrum löndum. Það má færa rök fyrir því að friður fyrir afbrotamönnum sé ákveðið velferðarmál; að fólk geti búið við ákveðið öryggi í landinu. Að mati flutningsmanna er ábyrgðarlaust ef við veitum ekki lögreglunni heimildir til forvirkra rannsókna og óásættanlegt að grípa ekki til þeirra heimilda fyrr en það er jafnvel orðið of seint með tilheyrandi afleiðingum fyrir öryggi almennings.
Ég sé að ég á eina og hálfa mínútu eftir. Ég vil nýta hana í að hvetja hæstv. innanríkisráðherra Ögmund Jónasson til að leggja áfram sitt lóð á vogarskálarnar í þessum málaflokki. Ég veit að skiptar skoðanir hafa verið innan Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um þessi mál, bæði í þingflokknum og í grasrót flokksins, en það er bara þannig komið, virðulegur forseti, að glæpastarfsemi virðir ekki landamæri. Sömu glæpir geta komið upp á Íslandi og í nágrannaríkjum okkar og ekkert bendir til annars en að svo verði í framtíðinni með einhverjum hætti, eins og við höfum séð mál þróast um mansal, fíkniefnainnflutning og annað. Við eigum því að klára þetta mál en ég vil um leið undirstrika mjög skýrt að það verður að vera strangt eftirlit með beitingu heimildanna. Að mínu mati bendir ekkert til þess að þær verði misnotaðar, það á ekki að vera hægt ef við höfum eftirlitskerfi með heimildunum. Því miður er nútímasamfélag orðið þannig að lögreglan verður að hafa jafnmikil úrræði og lögreglan í öðrum norrænum ríkjum. Ísland er ekki pínulítið, einangrað eyland einhvers staðar úti í hafi. Því miður er það bara einhver rómantísk, ímynduð staða. Hér geta hlutirnir skeð og gera það eins og annars staðar.
Ég skora á þingheim að klára þetta mál í vetur, veita heimildirnar en tryggja líka eftirlit með þeim.